Fréttablaðið - 03.12.2010, Page 48
8 •
HLJÓMSVEITIN AGENT FRESCO ER MIKIÐ Í SVIÐSLJÓSINU UM ÞESSAR MUNDIR EN HÚN GAF NÝLEGA ÚT SÍNA FYRSTU
BREIÐSKÍFU, A LONG TIME LISTENING. PLATAN HEFUR FENGIÐ GLIMRANDI DÓMA OG ÞYKIR ANSI LÍKLEG TIL AÐ BLANDA
SÉR Í TOPPSLAGINN Á ÁRSLISTUM GAGNRÝNENDA FYRIR ÞESSI ÁRAMÓT. SÖNGVARINN ARNÓR OG GÍTARLEIKARINN TÓTI
TÖLUÐU VIÐ POPP.
AGENT F
SCO
Platan er nýkomin út og fær rosalega dóma. Arnar Eggert lofsöng
hana og Fréttablaðið gaf henni fullt hús stiga. Hvernig leggst þetta
í ykkur?
Arnór:
Bara mjög vel. Áður en dómarnir birtust sagði ég við Tóta að ef Arnar
Eggert dæmdi plötuna væri mér í raun sama hvort hún fengi tvær,
þrjár, fjórar eða fimm stjörnur. Hann er maðurinn sem við tökum
mest mark á. Hann þekkir tónlistina okkar mjög vel, enda er
hann búinn að fylgjast með okkur frá byrjun, og er
afskaplega hreinskilinn. Við vitum að hans dómur
er ekki byggður á því sem hann upplifði eftir
að hafa rúllað plötunni bara einu sinni.
Er ekki varasamt að hafa fyrstu plöt-
una sína 66 mínútna langa með 17
lögum?
Arnór:
Við ræðum allt og meðal annars
ræddum við þetta. Við vorum búnir
að ákveða þetta þema og þennan
söguþráð. Mörg lögin eru samtengd
og vegna þess og út af textunum,
sem mynda saman eina heild, vildum
við ekki stytta hana meira. Upphaf-
lega voru lögin 19.
Þið töluðuð um það á sínum tíma
að platan væri eins konar concept-
plata...
Tóti:
Já. Við erum samt svo hræddir við
þetta orð.
Arnór:
En það er ekki til annað orð yfir
þetta. Það er svo mismunandi hvað
fólk hugsar um concept-plötur. Þetta
er það sama með orðið „prog“. Fólk
túlkar þetta á alla vegu og þess vegna
finnst okkur það skrýtið.
Orð: Haukur Viðar Alfreðsson
Myndir: Anton Brink
Framhald á næstu opnu