Fréttablaðið - 03.12.2010, Síða 60
12 •
UPPGJÖR
Meik ársins
Dikta
Fór af Xinu á FM 957 og af FM
957 á Bylgjuna. Allir elska Diktu,
sem er eina hljómsveit landsins
sem troðfyllir Players jafn auð-
veldlega og Nasa.
Drottning ársins
Vala Grand
Vann hug og hjörtu þjóðarinnar
og hyggst núna vinna ungfrú
Ísland keppnina.
Fótur ársins
Gylfi Sigurðsson
Skoraði mörg fáránleg mörk og
við vitum að þau eiga eftir að
verða fleiri.
Sigur ársins
Hera Björk í Eurovision
Árangur hennar í Eurovision
var mikil vonbrigði, sérstak-
lega miðað við hástemnndar
yfirlýsingar hennar um að vinna
keppnina.
Poppari ársins
Jónsi
Gaf út poppaða sólóplötu og
fór í risavaxna tónleikaferð um
heiminn.
15 mínútur ársins
Nilli
Steig fram á Airwaves-hátíðinni,
byrjaði með þætti á Mbl.is og
við erum strax búin að gleyma
honum.
Partí ársins
Smirnoff-partíið
Það sem átti að vera einkasam-
kvæmi fræga fólksins var flest-
um sem vildu í boði. Þeim sem
þurftu að pissa var boðið upp á
útikamra.
Endurkoma ársins
BlazRoca
Erpur fór aldrei, en hann er samt
kominn aftur og virðist ætla að
fljúga hærra en fyrir áratug.
Grátur ársins
Best Cry Ever myndbandið á
Youtube. Remix-útgáfan með
auto-tuninu er endalaust fyndin.
Flettið þessu upp.
Brjálæðingar ársins
Íslenskar stelpur
Allar vildu eiga Hollywood-spað-
ana Penn Badgley og Shawn
Pyfrom þegar þeir komu til
landsins í nóvember. Rifið var í
fötin þeirra, sem er einmitt besta
leiðin til að eignast vini.
Busar ársins
Kristmundur Axel og Júlí Heiðar
Þeir unnu Söngkeppni fram-
haldsskólanna og hug og hjörtu
ungmenna landsins með útgáfu
sinni af Tears in Heaven eftir Eric
Clapton.
Bekkur ársins
Eiður Smári
Fékk lítið að spila fótbolta á
árinu og heldur nú bekknum
heitum hjá Stoke City.
Tímaeyðsla ársins
Facebook
Notkun á samskiptavefnum hefur
náð nýjum hæðum.
Uppistandari ársins
Ari Eldjárn
Það er enginn betri. Þegar hann
plataði umboðsmann Bubba var
ákveðnum hápunkti náð.
Öskubuska ársins
Steindi Jr.
Var að skúra íþróttahús í
Mosfellsbæ fyrir tveimur árum,
en er nú ein helsta grínstjarna
landsins.
George Clooney ársins
Gunnar í Krossinum
Það er erfitt að vera fallegur.
Sjálftaka ársins
Tobba Marinós
Gaf íslenskum stelpum góð ráð
og nýtti þau svo sjálf til að byrja
með Kalla Baggalúti.
Tobba Marinós ársins
Hlín Einars
Mætt á svæðið sem einhvers
konar endurbætt útgáfa af
Tobbu.
2009 ársins
Kreppan
Heldur bara áfram. Þessi brand-
ari er ekki fyndinn lengur.
Heimkoma ársins
Logi Geirs
Kom heim, gekk í FH, gaf út bók
og meiddist.
Kærustupar ársins
Kristrún Ösp og Dwight Yorke
Fyrirsætan frá Akureyri og
fótboltakappinn fyrverandi voru
ekki saman, en eru samt hætt
saman.
Lady Gaga ársins
Haffi Haff
Það er eitthvað skrýtið að sjá
fílefldan karlmann klæddan eins
og Lady Gaga, en Haffa er sama
hvað þér finnst.
POPP
ANNÁLL
LÁTTU ÞÉR
LÍKA VIÐ VÍSI
og þú gætir fengið óvæntan jólaglaðning
Settu „Like“ við Vísi á Facebook og þú
gætir unnið flatskjá, flottan N8 síma,
góða jólabók eða einhvern annan
spennandi glaðning fyrir jólin.
DREGIÐ VERÐUR DAGLEGA TIL 20. DES.
N8 sími.
Bækur frá Sölku.
Fjöldi annarra vinninga.
Flott 22“ Panasonic Pure Line
sjónvarp með innbyggðri iPod vöggu.
Það er auðvelt að láta sér líka við Vísi á
facebook.com/visir.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki