Fréttablaðið - 03.12.2010, Page 61
• 13
Netið er bóla ársins
Flickmylife.com
Langbesta íslenska vefsíðan á
netinu í dag.
Ritverk ársins
Símaskráin
Reyndar símaskráin á næsta
ári, sem Egill Gillz sér um. Það
er beðið eftir henni með Harry
Potter eftirvæntingu.
Jónína Ben ársins
Jónína Ben
Jónína Ben, Jónína Ben Ben Jón-
ína Ben.
Flipp ársins
Jón Gnarr borgarstjóri
Hann er ekki ennþá búinn að
segja „djók“ og stendur sig ágæt-
lega á meðan „alvöru“-pólitíkus-
arnir bíða.
Kleinuhringur ársins
Pétur Jóhann
Skeggið hans í Hlemmavídeó er
háklassahringur.
Rappstríð ársins
Móri vs. Erpur
Í Bandaríkjunum nota þeir byssur,
hér notum við skúringamoppur.
Bangsi ársins
Friðrik Dór
Tók sig á í ræktinni eftir að
honum var líkt við skógarbjörn,
sökum þyngdar sinnar.
Innflutningur ársins
Iceland Airwaves
Erlendir gestir voru í meirihluta á
Iceland Airwaves í ár.
Pylsa ársins
Jón Ársæll
Því pylsa er bara fjórir bitar max.
Breska ríkisútvarpið BBC
vinnur nú að mynd um pönk-
goðsögnina The Clash. Mick
Jones og Paul Simonon úr
The Clash framleiða myndina
ásamt öðrum, en á meðal
framleiðenda er mamma Lily
Allen.
Byrjað verður að taka
myndina upp snemma á
næsta ári og á hún að fjalla
um hljómsveitina þegar
hún gerði plötuna London
Calling árið 1979. Ekki hefur
verið tilkynnt hverjir fara
með hlutverk strákanna í
Clash, en mikil spenna er
í Bretlandi fyrir myndinni.
Talað er um að það verði
erfitt að finna leikara með
andlit á borð við það sem
Paul Simonon ber.
MYND UM LONDON CALLING PÖNK BBC hyggst fram-
leiða mynd um
eina af merk-
ustu pönkplöt-
um allra tíma.
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Sel javeg 2.
Frí heimsendingarþjónusta til eldri borgara og öryrkja.
Reykjavíkur Apótek býður
NOW vítamín og bætiefni með
20% afslætti út september.
Reykjavíkur Apótek er
sjálfstætt starfandi apótek sem
leggur áherslu á persónulega
þjónustu og hagstætt
verð. Apótekið er í gamla
Héðinshúsinu við Seljaveg 2.
Sel javegur 2 | S ími : 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap. is | reyap@reyap. is