Fréttablaðið - 03.12.2010, Side 84
40 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Tónlist ★★
Hugsaðu um búskapinn -
hættu að daðra ...
Tríó Blik
Eiga ekki erindi
Hanna Dóra Sturludóttir syngur,
Freyja Gunnlaugsdóttir og Daniela
Hlinková leika.
Lög Ása í Bæ og Oddgeirs Kristj-
ánssonar eru falleg og skemmtileg.
Þau eru þó varla annað en dæg-
urlög og því set ég spurningar-
merki við útsetningar Atla Heimis
Sveinssonar sem nú eru komnar út
á geisladiski. Lögin eru hér fyrir
klarinettu og píanó, en Hanna
Dóra Sturludóttir syngur. Kamm-
erkennd umgjörðin fer lögunum
ekkert sérlega vel. Þau eru tilgerð-
arleg, eins og úr gömlu leikriti sem
á ekkert erindi við fólk í dag.
Auðvitað er ekkert að því að
setja dægurlög í nýjan búning. En
það er ekki sama hvernig það er
gert. Útsetningarnar eru hagan-
legar, en þær eru ekki frumleg-
ar. Atli Heimir getur samið alls
konar músík. Kannski hefði hann
átt að ganga miklu lengra, búa til
eitthvað ómstrítt og furðulegt úr
lögunum.
Hin leiðin, sem hefði verið
aðgengilegri, hefði verið að sleppa
klarinettunni. Hafa bara lögin ein-
föld, fyrir rödd og píanó. Freyja
Gunnlaugsdóttir klarinettuleikari
spilar vissulega vel. En hún reynir
of mikið að spila kæruleysislega.
Klarinettan verður fljótt pirrandi.
Skiptir þá engu að bæði píanóleik-
arinn og söngvarinn skila sínum
hlutverkum af prýði. Hanna Dóra
syngur af einlægni og píanistinn
spilar af vandvirkni. En til hvers?
Það er enginn á réttum stað eða á
réttum tíma, ekki hljóðfæraleikar-
arnir, söngvarinn, útsetjarinn eða
tónskáldin.
Niðurstaða: Lög Ása í Bæ og Odd-
geirs Kristjánssonar eru í búningi sem
hæfir þeim illa.
Tónlist ★
Samkór Reykjavíkur
Samkór Reykjavíkur syngur undir
stjórn Keith Reed
Þreyttur kór
Kórar á Íslandi eru ótrúlega
margir. Þeir eru langflestir skip-
aðir áhugafólki. Fólkið kann ekki
mikið í raddbeitingu. Það hefur
litla söngþjálfun að baki. Þetta
gerir söngstíl kóranna sérstakan.
Hann er opinn og tær þegar vel
tekst til, en fínlegum blæbrigðum
er oft ábótavant. Tæknin er svo
takmörkuð að músíkin kemst ekki
til skila á almennilegan hátt.
Því miður vantar þetta fínlega í
Samkór Reykjavíkur. Hann býður
upp á hefðbundna dagskrá á borð
við Alparósina og Smávini fagra.
Það er eins og öll orkan hafi farið í
að láta kórmeðlimi syngja samtaka
og hreint. Sem er ekki nóg. Smá-
atriðin eru gríðarlega mikilvæg í
tónlist. Það er einfaldlega valtað
yfir þau hér. Laglínurnar eru ekki
nægilega vel mótaðar. Hljómarnir
eru oftast eins á litinn. Þetta eru
bara raðir og mynstur af tónum
sem hafa litla merkingu.
Sönggleðin hefur oft komið
íslenskum kórum langt. En hana
er ekki að finna hér. Söngurinn
er daufur, maður hefur á tilfinn-
ingunni að kórinn sé búinn að æfa
lögin allt of mikið. Útkoman er
óttalega óspennandi.
Niðurstaða: Sönggleðina vantar í
Samkór Reykjavíkur. Tónlistin mætti
vera betur mótuð.
Tónlist ★★★
Gnótt
Gunnar Gunnarsson
Tónlist í freyðibaði
Gunnar Gunnarsson píanóleikari
og organisti er á ljúfum nótum á
geisladiskinum Gnótt. Nokkur
þekkt lög á borð við Frostrósir og
Sveitin milli sanda eru sett í nota-
legan píanóbúning. Þeir Tómas R.
Einarsson, Ómar Guðjónsson og
Matthías Hemstock krydda hóf-
lega og af smekkvísi. Þetta er
svona tónlist eins og maður heyrir
í flugvélum Icelandair eftir lend-
ingu. Tónlist sem róar farþega
svo þeir losi ekki beltin og ryðj-
ist út áður en sætisbeltaljósin eru
slökkt.
Útsetningarnar eru afslappaðar
og einfaldar, Gunnar er ekkert að
þykjast. Hann veit hvað hann vill
og spilar vel. Hinir gera það líka.
Maður gæti kallað geisladiskinn
lyftutónlist, en það er staður og
stund fyrir hana. Stundum er hún
beinlínis nauðsynleg.
Ef þig vantar eitthvað til að
hlusta á í freyðibaði gæti þetta
verið rétti geisladiskurinn!
Jónas Sen
Niðurstaða: Ljúf lyftutónlist sem er
þægileg áheyrnar.
Þrír misgóðir hljómdiskar
Kórarnir Selkórinn og Vox Acad-
emica flytja óratoríuna Messías
eftir Georg Friðrik Händel í sam-
einingu í tvígang nú í desember.
Kórarnir hófu að æfa verkið hvor
í sínu lagi í haust en þegar þeir
fréttu af hvor öðrum ákváðu þeir
að leiða saman hesta sína.
Óratorían verður flutt í Seltjarn-
arneskirkju sunnudaginn 5. desem-
ber og í Guðríðarkirkju í Grafar-
holti miðvikudaginn 8. desember.
Auk kóranna taka fjórir ein-
söngvarar þátt í flutningnum,
Ágúst Ólafsson bassi, Snorri Wium
tenór, Sesselja Kristjánsdóttir alt
og Hulda Björk Garðarsdóttir
sópran. Tuttugu manna hljómsveit
sér um undirleik og konsertmeist-
ari er Sigrún Eðvaldsdóttir. Stjórn-
andi er Jón Karl Einarsson.
Tónleikarnir í Seltjarnarnes-
kirkju á sunnudag hefjast klukkan
17 en tónleikarnir í Guðríðarkirkju
á miðvikudag hefjast klukkan 20.
- bs
Tveggja kóra verk
Tilboð kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.200
Vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele Tango Plus
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar, með
stillanlegu röri og úrvali fylgihluta. Þær hafa hlotið
hæstu einkunn hjá neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
AF ÆFINGU Selkórinn og Vox Academia byrjuðu að æfa Messías eftir Händel hvor í
sínu lagi en ákváðu að leiða saman hesta sína þegar þeir fréttu af hvor öðrum.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Tryggjum öllum börnum gleðileg jól
Taktu þátt í Pakkajólum Bylgjunnar við jólatréð í Smáralind
Við óskum öllum gleðilegra jóla
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 03. desember
➜ Tónleikar
12.15 Garðar Cortes heldur þrenna
hádegistónleika á Kjarvalsstöðum þar
sem hann flytur eftirlætislög sín. Píanó-
leikarinn Robert Sund leikur undir. Tón-
leikarnir hefjast kl. 12.15 og er aðgangs-
eyrir 1000 krónur.
16.30 Máki Páki and the Happy
hours leika létta tónlist frá ýmsum
löndum milli kl. 16.30-18 á Bar og Gall-
erý 46, að Hverfisgötu 46.
19.00 Á Hemma & Valda, Laugavegi
21, koma fram í kvöld Elín Ey, Kidrama,
Reason to belive, Monsoon Drive,
PORQUESI, Agent Fresco og Dj Sexy
lazer. Tónleikarnir hefjast kl. 19. Frítt inn.
20.30 Á Café Haiti, að Geirsgötu 7b
(verbúð við gömlu höfnina), verða tón-
leikar með Skúla mennska og Markús
& the diversion sessions. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30 og er aðgangseyrir
enginn.
22.00 Eyþór Ingi ásamt hljómsveit
verða með Deep Purple Tribute í Hvíta
húsinu á Selfossi í kvöld. Tónleikarnir
hefjast kl. 22 og er miðaverð 1500
krónur.
22.00 Á Græna hattinum á Akureyri
verða tónleikar með Memfismafíunni
ásamt Baggalút, Hjálmum og Sigurði
Guðmundssyni. Tónleikarnir hefjast kl.
22 og opnar húsið kl. 21.
22.00 Á skemmtistaðnum Bakkus,
Tryggvagötu 22, verða tónleikar með
bandaríska tónlistarmanninum Bobby
Conn í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 22
og er miðaverð 1500 krónur.
23.00 Hljómsveitin VAX heldur tón-
leika á Faktorý í kvöld. Frítt inn og hefj-
ast tónleikarnir kl. 23.
➜ Opnanir
16.00 Sýningin Á FERLI eftir Ástu
Ólafsdóttur opnar í Kubbnum kl. 17,
sýningarrými myndlistardeildar Listahá-
skóla Íslands að Laugarnesvegi 91. Jón
Proppé flytur erindi um list Ástu kl. 16 í
fyrirlestrarsal skólans í Laugarnesi. Allir
velkomnir.
17.00 Sýningin UMBROT, samsýning
nemenda í textíl, teikningu og mótun
við Myndlistarskólann í Reykjavík opnar
í dag kl. 17. Sýning er í Þjóðmenningar-
húsinu, að Hverfisgötu 15.
➜ Opið hús
11.00 Á alþjóðadegi fatlaðra, í dag,
býður Þjóðminjasafn Íslands gestum
ókeypis aðgang að safninu. Að auki
geta gestir prófað hljóðleiðsögn safns-
ins endurgjaldslaust. Safnið er opið kl.
11-17.
Félag eldri borgara í Kópavogi verður
með opið hús í félagsheimilinu Boð-
anum, að Boðaþingi 9, laugardaginn 4.
desember kl. 14. Lesið verður úr nýjum
bókum og Bergssystur syngja. Kaffi í
boði félagsins. Allir velkomnir og frítt
inn.
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmyndin Borgaraleg hegðun
verður sýnd í Bíói Paradís í kvöld. Sýn-
ing hefst kl. 20 og er ókeypis aðgangur
á meðan húsrúm leyfir.
➜ Markaðir
16.00 Fatamarkaður Rauða Krossins
verður í Sláturhúsinu, Egilsstöðum, í
dag. Húsið opnar kl. 16.
Frá deginum í dag til 12. desember
mun Listasafn Íslands gefa listunnend-
um kost á að eignast kostagripi á lág-
marksverði. Útsölustaðir eru Hafnarhús,
Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.