Faxi

Volume

Faxi - 01.04.2006, Page 2

Faxi - 01.04.2006, Page 2
Lionsklúbbur Keflavíkur heldur upp á hálfrar aldar afmæli sitt á þessu ári - var stofnaður 7. apríl 1956. Þetta er merkur áfangi í sögu klúbbsins og ekki síður bœjarfélagsins, sem hefur notið starfskrafta hans og einstœðrar þjónustu á sviði líknar-, mannúðar- og menningarmála allt frá upphafi. Það er því við hœfi að Faxi geri klúbbnum og starfi hans til heilla fyrir mannlíf á Suðurnesjum góð skil á þessum tímamótum. Tilgangur Lionsklúbbs Keflavíkur, eins og Lionsklúbb- anna yfirleitt, hefur ekki aðeins verið sá að eflafélags- anda og heilbrigt félagslíf heldur einnig að fylgjast með þörfum samfélagsins og finna leiðir til að fullnœgja þeim, ýmist með eigin átaki eða í samvinnu við aðra. Um eitt skeið var Lionsklúbbur Keflavíkur fjölmennasti Lionsklúbbur landsins. Klúbburinn hefur jafnan verið skipaður athafnasömu og félagssinnuðu fólki og átt því láni aðfagna að einn af stofnfélögunum, Ingvar Guð- mundsson, kennari, hefur haldið utan um sögu hans með miklum ágœtum. Má sjá úrdrátt afafrakstri þeirrar vinnu hér í blaðinu. Stofnendur klúbbsins voru sextán talsins og eru fjórir enn starfandi, þeir Tómas Tómasson, Hilmar Pe't- ursson, Hörður Guðmundsson og Ingvar Guðmundsson. Innra starfhefur verið rnjög margbreytilegt. Frá upp- hafi hafa 128 fe'lagar gengið í klúbbinn en klúbbfélagar eru núna 38 talsins. Um það bil 100 félagar hafa tekið þátt í stjórnarstörfum og haldnir hqfa verið 877fundir frá upphafi, auk hátíða og skemmtana. Háitt ífjögur hundruð innboðnir fyrirlesarar hafa flutt klúbbfélögum margvíslegt frœðslu- og skemmtiefni, enfélagarnir hafa sjálfir einnig flutt fjölmörg erindi. Fundir hafa verið haldnir víða í bænum, en líka erlendis og á skipsfjöl, og félagarnir hafa einnig heimsótt ýmis fyrirtœki í nágrenn- inu og haldið fundi í boði þeirra . 1 erindi sem Tómas Tómasson, fyrsti formaður klúbbs- ins, flutti á afinæli hans 12. apríl síðstliðinn sagði hann m.a., að enda þótt Lionsklúbbur Keflavíkur sé hlekkur í alþjóðlegri hreyfingu hafi hann ávallt lagt áherslu á sjónarmið heimabyggðar og viljað verða að liði á þeim vettvangi. Orðre'tt sagði Tómas: „Að endingu á ég þá ósk klúbbnum til handa á þessum tímamótum, að sú gifta sem hvatamennirnir að stofnun hans lögðu honum til í upphafi og honum hefur fylgt til þessa í einhug, órofa samheldni og Ijúfum félagsbrag, megi endast honum enn um ófyrirsjáanlega framtíð. ” Faxi tekur undir þessi orð og árnar Lionsklúbbi Keflavíkur farsældar á þessum tímamótum. ETJ 2. tölublað - 66. árgangur - 2006 Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Skrifstofa: Grófin 8, st'mi 868 5459. Ritstjóri: EðvarðT. Jónsson. Netfang: edvardjS'gmail.com Blaðstjórn: Kristján A. Jónsson formaður, Helgi Hólm, Magnús Haraldsson, Geirmundur Krisúnsson og Karl SteinarGuðnason. Öll prentvinnsla: Stapaprent ehf. Gróftn 13c - 230 Keflavík. Sími 421 4388 - Fax 421 4388 Netfang: stapaprent@mitt.is Netfang v/auglýsinga: helgiholm@vogar.is Forsíðumynd: Rósinkar Ólafsson 2 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.