Faxi - 01.04.2006, Blaðsíða 37
Njarðvíkingar íslandsmeistarar í
AUt síðasta íslandsmót var
lið UMFN í toppbaráttunni
og þegar upp var staðið
hampaði liðið hinum eftirsótta
lslandsmeistarabikar í þrettánda
sinn. Einar Árni Jóhannsson, hinn
ungi þjálfari liðsins mcð Gunnar
Þorvarðarson sér við hlið, hafði
allan veturinn augun á þessum titli
sem ekki liafði fallið Njarðvíkingum
í skaut síðustu fjögur árin. Og
það verður að segja það að þegar
UMFN er annars vegar þá eru
fjögur ár langur tími.
Lið Njarðvíkinga í vetur var mjög
vel mannað. Friðrik Stefánsson,
Brenton Birmingham, Jeb Ivey,
Guðmundur Jónsson, Jóhann Á.
Olafsson, Egill Jónasson, Halldór
R. Karlsson. Þessir leikmenn hafa
leitt leikmannahóp Njarðvíkur í
vetur og vildu eflaust flest lið hafa
þessa kappa innanborðs.
Friðrik er óumdeilanlega besti
miðherji landsins um þessar mund-
ir, Brentoner frábær í vörn og sókn
þegar sá gállinn er á honum, Jeb er
einn af betri erlendu leikmönnunum
sem leika hér um þessar mundir,
Guðmundur á oft slíkar rispur að
hann getur gjörbreytt gangi leikja,
Egill hefur einstakt lag á að blokka
skot andstæðinganna og Jóhann Á.
er einn af efnilegustu yngri leik-
mönnum landsins. Það er því eng-
in furða að liðinu hafi gengið vel í
vetur.
Það kom aftur á móti á óvart hverj-
ir voru andstæðingar Njarðvíkinga
körfu í þrettánda skipti
þegar kom að úrslitarimmu Islands-
mótsins. Það voru ekki margir sem
höfðu spáð því að lið Skallagríms
yrði í því hlutverki en það fór nú
samt þannig.
Undir öflugri stjórn Vals Ingi-
mundarsonar bar liðið sigur á hinu
sterka liði Keflavfkur og komst þar
með í úrslit gegn UMFN sem bar
sigur úr býtum á móti KR í und-
anúrslitum.
Urslitarimman fór skemmtilega
af stað í Njarðvfk þar sem heima-
menn unnu með 89 stigum gegn
70. I öðmm leiknum á heimavelli
Skallagríms í Borgarnesi bám
heimamenn sigurorð af Njarðvík á
sannfærandi hátt, skomðu 87 stig á
móti 77 stigum Njarðvíkinga. Eftir
þessa ágætu mótstöðu.
Borgnesinga tóku Njarðvfkingar
málin í sínar hendur og léku til sig-
urs í tveimur næstu leikjum, fyrst í
Njarðvík með 107 stigum gegn 76
og síðan í Borgarnesi með 81 stigu
móti 60. Til hamingju með sigurinn
Njarðvíkingar! HH
FAXI 37