Faxi - 01.04.2006, Blaðsíða 41
hvar laukurinn er geymdur í skipim)?" „Laukur,
laukur!” öskrar skipstjórinn.' „Viltu fara strax
og segja kokknum að hann verði kjöldreginn
ef að sjáist laukur í súpunni.” Magnús hrökk-
last til baka og segir kokknum frá undirtektum
skipstjórans. „Þetta er allt í lagi, Maggi minn”,
segir kokkurinn um leið og hann sýnir honum 3
stóra lauka sem hann tók með að heiman. „Þess-
ir laukar fá að krauma í súpunni þangað til hún
verður borin á borð. þá tek ég þá og hendi þeint
út um kýraugað. Þá sér hann aldrei neinn lauk og
verður ánægður með súpuna." Magnús skildi nú
hvernig í öllu lá og hafði gaman af öllu santan.
Það er skemmst frá að segja, að þegar skip-
stjórinn var búinn að kýla á sér vömbina í hádeg-
mu, en samt búinn að finna að ýmsu, td. kartöflur
ofsoðnar, kjöt ofsoðið o.fl. þá kom hann fram í
eldhús og segir: „Koksi, helvíti var súpan góð
hjáþér.” „Já,” svarar koksi, „laukur er undirstaða
góðrar matargerðar.” „Ég sá engan lauk,” svar-
aði skipstjórinn og fór upp í brú, en kokkurinn
kveikti sér í vindli og brosti út í annað.
Hafsteinn Guðnason.
FAXI 41