Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.2006, Blaðsíða 11

Faxi - 01.04.2006, Blaðsíða 11
assyni, Bjarna Albertssyni, Lk. Keflavíkur og Olafi Sigurðssyni, Lk. Akraness, afhent heiðurs- merki fyrir stofnun klúbbanna. A fundi 12. desember var samþykkt að stofna Góðgerðarsjóð og var borði komið fyrir á af- viknum stað og dúkur breiddur þar yiir. Hver félagi fór síðan að borðinu og sett smá peninga- upphæð undir dúkinn. Afrakstur þessarar fyrstu söfnunar í Góðgerðarsjóðinn var kr. 3.500 og var ákveðið að verja allri þeirri upphæð til fjöl- skyldu hér í bæ, en heimilisfaðirinn hafði orðið fyrir alvarlegu slysi. 2. starfsár: 1957 - 1958 A árinu eru gerðar ýmsar mjög skemmtileg- ar samþykktir s.s. að menn skyldu greiða fyrir mat sinn þó svo þeir mættu ekki á fundi. Þá var og gerð sú samþykkt að framvegis yrði það föst regla að fundum yrði slitið að loknu borðhaldi þá er dagskrá væri tæmd. Fundarmenn áttu þá að færa sig yfir að smá- borðum þar sem kaffi beið þeirra er þess óskuðu og þar gátu menn haldið áfram umræðum um áhugamál sín svo lengi sem þeir höfðu áhuga á. Var þetta óspart notað og urðu umræður þá oft mjög tjörugar. Þá áttu sér stað miklar og skemmtilegar um- ræður varðandi fegrun bæjarins. Beindust augu manna einkum að trjárækt. I lok þessa starfsárs varð veruleg fjölgun Lionsmanna á Suðurnesjum, er Lk Keflavík- ur stóð fyrir stofnun Lk í Njarðvíkum 17. maí 1958. Áhugasamir félagar um útbreiðslu Lions- hreyfingarinnar höfðu unnið að því í samráði við nokkra Njarðvíkinga að ná saman hópi val- inkunnra manna þar í bæ og var stofnskrárhátið klúbbsins haldin í maí. 3. starfsár 1958 - 1959 Fundarstaður er enn sem áður í Sjálfstæð- ishúsinu við Hafnargötu. Starfsemi klúbbsins er að falla í nokkuð fast form og ýmsar skemmti- legar venjur eru að skapast. Þótt félagar væru vel meðvitaðir um tilgang Lionshreyfingarinnar, sem er þjónustu hlutverkið, er megin áherslan lögð á hið innra starf klúbbsins þ.e. þjappa hóp- num saman og skapa skemmtilegan félagsanda. Þetta hefur tekist einkar vel á þessum fyrstu árum klúbbsins, menn hafa rætt þau mál sem tekin hafa verið fyrir hverju sinni af miklu kappi en þó ávallt í mestu vinsemd. Allar umræður hafa verið kryddaðar gamansemi en jafnframt hæfi- legum skammti af alvöru. Þannig hefur srnám saman myndast sterkur og skemmtilegur hópur sem lofar góðu um framtíð klúbbsins. I upphafi þessa starfsárs er nefndum verulega fjölgað. Var tilgangurinn fyrir fjölgun nefnda fyrst og fremst sá að gera alla félagana sem virk- asta í starfi. 4. starfsár 1959 - 1960 Því miður hafa Keflvíkingar ekki getað státað af góðum matsölustöðum eða kaffihúsum líkt og höfuðborgarbúar. Aðkomufólk hefur gjarnan kvartað yfir að hér sé erfitt að fá kaffi keypt svo Perunwn pakkað afmiklum móð. F.v.: Þórunn Þorbergsdóttir; Þorbergur Friðriksson, Sveinn Jóns- son, Bragi Halldórsson og Böðvar Pálsson ekki sé talað um góða máltíð. Sem betur fer hef- ur hér nú orðið ánægjuleg breyting á með opn- un nýs matsölu- og veitingastaðar sem nefnist Matstofan Vík og er í eigu bræðranna Magnúsar og Sturlaugs Bjömssonar, en Magnús er læröur veitingamaður. Nýbyggt stórt tveggja hæða hús þeirra stendur á horni Hafnargötu og Faxabraut- ar. Á fyrstu hæð hússins er kaffi og matsala en á efri hæðinni erglæsilegur veitingasalurog þang- að hefur klúbburinn flutt starfsemi sína á þessu starfsári. 5. starfsár 1960 - 1961 Fundir voru haldnir á Matstofunni Vík og varð mæting að meðaltali rétt rúm 70%. Þetta var rnikið merkisár í sögu Keflavíkur þar sem einn af stofnendum klúbbsins, Tómas Tómasson, hafði verið kosinn umdæmisstjóri Lionshreyfingarinnar á Islandi og gegndi því þetta starfsár. Verkefni á árinu voru eftirfarandi: Jólagjafir voru gefnar vistfólki á elliheimili Keflavíkurbæjar að verðmæti kr. 4000. Elliheimilinu var gefið útvarpstæki að verð- mæti kr. 2500. Happadrættismiðar voru seldir fyrir Styrkt- arfélag vangefinna fyrir kr. 10.000. Stofnaður var sjóður með þrjú þúsund króna framlagi. Skal honum varið til kaupa á áhöldum fyrir Sjúkrahús Keflavíkur. Klúbbfélagar hafa veitt aðstoð á föndurnáms- skeiðum Æskulýðsráðs Keflavíkur. 6. starfsár: 1961 - 1962 Á fyrsta fundi þessa árs kemur fram tillaga frá Jóni Kr. Jóhannssyni varðandi fjáröflun fyrir klúbbinn, en hún er að selja bæjarbúum ljósaper- ur. Slík perusala til ágóða fyrir Lionshreyfinguna er mjög vel þekkt í Bandan'kjunum, er reyndar aðal tjáröflunarleið klúbbanna þar. Var þessi FAXI 11 Björgunarsveitin Stakkurfœr gjöffrá Lk. Keflavíkur. F.v.: Herbert Arnason, Ellert Skúlason, Garðar Sigurðsson, Einar Stefánsson og Guðbjörn Guðmundsson

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.