Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.04.2006, Qupperneq 21

Faxi - 01.04.2006, Qupperneq 21
og farsældar. Kjörorðið var „íslandi allt.“ Þess- ir mætu menn voru fullir af slíkum eldmóði er hreif alla með og einnig þá sem stóðu að stofnun Lionsklúbbsins í Keflavík. I tilefni þessara tímamóta í sögu klúbbsins var gefið út myndarlegt afmælisrit og því dreift í öll hús í Keflavfk. Af þessu riti varð verulegur auglýsingahagnaður, sem látinn var renna í líkn- arsjóð. Þá var farið í perusölu líkt og undanfar- andi ár og tókst hún með ágætum. Varð hreinn hagnaður af sölunni kr. 352.556. A þessu afmælisári var reynt að vanda mjög til funda og hafa þá sem fjölbreytilegasta. Veglegur jólafundur var haldinn 13. desember ásamt eiginkonum klúbbfélaga og var á þeim fundi ýmislegt gert til skemmtunar.Þá voru fjórir fundir haldnir utan hefðbundins fundarstaðar. Sá fyrsti var haldinn í byrjun janúar í flokks- fundarsal í Alþingishúsi íslendinga. Árni Ragn- ar Árnason, Lionsfélagi og alþingismaður, hafði allan veg og vanda af þeirri heimsókn. Sýndi hann félögum húsið og sagði sögu þess ásamt margra gamalla muna og málverka, sem þar er að finna. Eftir heimsóknina í Alþingishúsið fóru fundarmenn í veitingahúsið Við tjörnina og snæddu þar ljúffenga fiskrétti hjá Suðurnesja- manninum, Rúnari Marvin í hans sérkennilega veitingahúsi. 41. starfsár 1996 - 1997 Líkt og venja hefur verið í upphafi hvers starfsárs urðu nú miklar umræður varðandi fjáröflun klúbbsins, því peningar eru jú afl þeirra hluta sem gera skal. Perusalan hefur ávallt vegið þyngst og verið einn aðal tekjustofn líknarsjóð- ms. Nokkurrar svartsýni hefur gætt hjá sumum félögum varðandi perusölu vegna breyttrar lýs- ingar hjá fólki, einkum í nýrri hverfunum, þar sem skrautlýsing hefur leyst af gömlu góðu Ijósaperuna! Komu fram hugmyndir um að auka mætti fjölbreytni varðandi söluna, t.d. mætti bjóða nýjar vörutegundir og nefnt var íslenskt sjampó eða jafnvel lýsi. Fengu þessar hugmynd- ir lítinn hljómgrunn meðal meirihluta félaga, töldu þetta óþarfa svartsýni. Perusalan hefði ávallt dugað vel til fjáröflunar og vonandi yrði svo um næstu framtíð. Að sjálfsögðu væri þó ávallt gagnlegt í upphafi hvers starfsárs að ræða nýja möguleika til fjáröfiunar, hver veit nema þá kæmi fram snjöll hugmynd sem gæti dugað okkur vel. Með þetta í huga voru keyptar tíu þúsund perur frá Heimilistækjum og voru þær seldar bæjarbúum, sem eins og undanfarandi ár tóku Lionsmönnum mjög vel og keyptu perurn- ar glaðir í bragði þótt einn og einn segðust eiga birgðir frá fyrri árum! Er formaður fjáröflunar, Hjálmar Stefánsson, greindi síðar frá gangi perusölunnar vildi hann sérstaklega þakka einum félaga, Halldóri Páls- syni, fyrir mikinn dugnað við söluna á liðnum árum. 42. starfsár 1996 - 1997 Það er auðséð á fundargerðum nú að fram- kvæmd perusölunnar er farin að verða nokkuð erfið og kemur þar margt til s.s. minni þörf á heimilum fyrir venjulegar ljósaperur. Eins og margoft hefur komið fram telur fólk sig ekki lengur hafa not fyrir 25 watta perur, þær séu ekki lengur notaðar! Margar tillögur voru bornar fram varðandi þessa fjáröflun okkar en fengu lít- inn hljómgrunn. Þrátt fyrir þetta vandamál töldu menn að óskynsamlegt væri að hverfa frá peru- sölunni, hún hefði unnið sér fastan sess í starfi klúbbsins og einnig í bæjarlífinu, en félagar voru því sammála að perusalan væri ekki lengur eins skemmtileg og hún var hér áður fyrr. I sjónmáli væri ekki betri fjáröílunarleið fyrir klúbbinn en perusalan. Fór því salan fram að venju og varð hagnaðurinn af henni kr. 432.142 sem þótti harla gott. Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri og félagi, bauð klúbbnum endurgjaldslausa þjón- ustu Sparisjóðs Keflavíkur og var það boð vel þakkað. Verður af þessu mikil hagræðing og þá einkum fyrir gjaldkerann, sem hér eftir mun innheimta ársgjöldin með gíró seðlum. Líknarmálin voru með svipuðu sniði og und- anfarin ár. Klúbburinn styrkti myndarlega unga stúlku héðan úr bæ, sem send var til Bandaríkj- anna í nýrnaaðgerð. Þá bárust skemmtileg bréf frá fósturbömum klúbbsins í Brasilíu og Ind- landi. Á árinu hélt Þroskahjálp upp á 20 ára af- mæli og mættu fulltrúar frá klúbbnum í afmælið og færðu félaginu að gjöf kr. 50.000. Miklir erfiðleikar hafa verið hjá Lk Oðni hér í bæ vegna lélegrar mætingar félaganna. Allar lík- ur eru á að þetta verði síðasta starfsár Lk. Óðins. Umræður urðu um málið og hörmuðu menn að svo illa væri komið fyrir Óðinsmönnum. Voru menn sammála um að bjóða þá Óðinsmenn vel- komna í Lk Keflavíkur, sem áfram vildu starfa að málefnum Lionshreyfingarinnar. 43. starfsár 1998 - 1999 Fyrsti fundur þessa starfsárs var haldinn fimmtudaginn 10. september kl. 20 á hótel Kro- ner í Clearvoux í Luxemborg. Á fundinum voru mættir 25 félagar ásamt 23 eiginkonum. Ástæð- an fyrir þessum fundarstað var ferðalag Lions- félaga til Þýskalands og Luxemborgar ásamt eiginkonum. Var þessi ferð mjög vel heppnuð og skemmtileg. Það er nú til umræðu meðal félaga að auka fjölbreytni í félagsstarfinu með heim- sóknurn til áhugaverðra staða bæði innanlands og einnig erlendis. Var Þýskalandsförin einmitt liður í þeitTÍ áætlun. Nokkur erindi bárust til líknarnefndar um fjár- stuðning frá ýmsum félögum. Lagði nefndin til að kr. 25.000 styrkur yrði veittur íþróttafélagi fatlaðra og allt að 75% ráðstöfunarfé sjóðsins yrði varið til kaupa á sýrustigsmælitæki fyrir Heilsugæslu Suðurnesja. 44. starfsár 1999 - 2000 Starfsárið hófst með fjörugum umræðum varðandi starfið á komandi vetri. Sérlega ánægjulegt og sólríkt sumar var að baki og áframhaldandi góðviðri á haustdögum gaf fyr- irheit um mildan vetur. Á fyrstu fundum var allnokkuð rætt um það vandamál, sem í seinni tíð hefur alloft borið á górna, en það er hinn hái meðalaldur félaga. Voru félagar sammála um að mjög brýnt væri að leita að yngri félögum til samstarfs í klúbbnum. Meðalaldur starfandi félaga í upphafi þessa starfsárs er 65 ár og að sjálfsögðu hækkar hann ört með hverju ári sem líður korni ekki yngri menn til starfa. Farið var í nokkrar skemmtilegar vettvangs- ferðir á árinu s.s. til Vatnsveitu Reykjavíkur við Gvendarbrunna, í Járnblendisverksmiðjuna á Grundartanga, heimsókn til Hitaveitu Suð- urnesja í Svartsengi og Eldborg, hið glæsilega móttökuhús hitaveitunnar þar skoðað og farið var í skoðunarferð til ratsjárstofnunar á Kefla- víkurllugvelli, þar sem starfsemi Kögunar var kynnt félögum. FAXI 21

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.