Faxi

Volume

Faxi - 01.04.2006, Page 26

Faxi - 01.04.2006, Page 26
Sjúkrahúsi Keflavíkur ajhent stórgjöf. F.v.: Eyjólfur Eysteinson, framkvœmdastjóri sjúkrahússins, Jóhann Einvarðsson, stjórnarform. sjúkrahússins, Arni Þorgrímsson, Lionsmaöur, Kristján Sigurðsson, yfirlœknir, Vilhjálmur Þórhallsson, Lionsmaður, og Lúðvtk Jónsson, meinatœknir. Jóhann Einvarðsson: rtnn Ljósmynd: Faxi - í starfi Lionsklúbbs Keflavíkur Laugardagurinn 27. apríl 1972 markaði söguleg tímamót í heilsu- gæslu á Suðurnesjum. Þann dag afhenti Lionsklúbbur Keflavíkur sjúkra- húsinu verðmæta og kærkomna gjöf, sem síðar varð grunnurinn að rannsóknar- stofu sjúkrahússins. Þáverandi formaður Lk. Keflavíkur, Arni Þór Þorgrímsson, afhenti gjöfina - tæki til rannsókna á blóð- sýnum og öðrum sýnum, sem áður hafði alltaf þurft að senda til Reykjavíkur til rannsókna. Fyrsti meinatæknir sjúkra- hússins, Lúðvík Jónsson, hafði þá þegar verið ráðinn, tók hann til starfa í júní það ár. Tækin kostuðu um 325 þús. kr. á þávirði og höfðu Lionsfélagar safnað fé til kaupanna með happdrætti og eftir öðrum leiðum. Morgunblaðið sagði í til- efni dagsins, að sú rannsóknarstofa, sem nú hefði verið komið á fót yrði öllum Suðurnesjabúum og starfandi læknum í héraðinu til ómetanlegs gagns í framtíð- inni. Sú varð einnig reyndin. Jóhann Émvarðsson 26 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.