Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.2006, Blaðsíða 32

Faxi - 01.04.2006, Blaðsíða 32
Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur stórgóð skemmtan riðjudaginn 9. maí sl. fór undirritaður á tónleika Karlakórs Keflavíkur sem haldnir voru í Kirkjulundi, safn- aðarheimili Keflavíkurkirkju. Eg hafði ekki heyrt í kórum um nokkurn tíma og því var það með nokkurri tilhlökkun að ég var þarna kominn. Ekki dró það úr eftirvæntingunni að samkvæmt söngskránni átti Davíð Olafsson að syngja með kórnum. Ekki var það eini gullmolinn þetta kvöldið því gott lið undirleikara var og mætt til leiks en meira um það síðar. Er skemmst frá því að segja að ég skemmti mér konunglega og fannst kórinn standa sig glæsilega. Söngskrá kórsins tók mið af því að einir tónleikar skyldu haldnir í Vestmannaeyjum. Kórinn flutti nokkur lög eftir Oddgeir Krist- jánsson úr Eyjum auk þess voru m.a. óperukórar og sjómannalög á söngskránni. Fannst mér hún vera vel uppbyggð þar sem bæði var boðið upp á kröftuga óperukóra og létt lög. Guðlaugur Viktorsson er núver- andi stjórnandi KK en hann hefur starfað með fjölmörgum kórum, s.s. Karlakór Reykjavíkur og Lög- reglukór Reykjavíkur sem hann stjórnar enn í dag. Það var mjög léttur blær yfir stjórn hans og brá hann öðru hvoru á leik og vakti það óskipta kátínu meðal viðstaddra. Samsöngur Davíðs Olafssonar og kórsins í Þrymskviðu fannst mér vera hápunktur í þessum ágætu tón- leikum. Undirleikarar með kórnum voru þeir Sigurður Marteinsson píanóleikari, Þórólfur Ingi Þórsson rafmagnsbassaleikari og German Hlopin harmonikuleikari og stóðu þeir sig allir með ágætum. Aðsókn að vortónleikum kórsins var mjög góð, svo góð reyndar að boðaðir voru aukatónleikar nokkrum dög- um síðar. Það er mjög ánægjulegt að sjá að kórinn lætur engan bilbug á sér finna því hann er löngu orðinn ómissandi hluti af hinu fjölbreytta lista- og menningarlífi sem fram fer hér á svæðinu. Helgi Hólm ORKUREIKNINGANA Skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 80. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9-16, föstudaga kl. 9-15. Eindagi orkureikninga er 15. hvers mánaðar. Látið orkureikninginn hafa forgang 32 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.