Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.2006, Síða 39

Faxi - 01.04.2006, Síða 39
Á Njarðvíkurbryggju eru mættir 15 félagar. Þareru mörg kunnugleg andlit úr bæjarfélaginu. Olafur Björnsson lætur sig ekki vanta þó að hann hafi færst úr brúnni niður á dekk, enda maður sem kann til verka hvar sem er. Jón H. lætur sig heldur ekki vanta. Það er eins víst eins og að rauðmaginn kemur á vorin, Jón mætir alltaf. Fleiri kunnugleg andlit eru hér, en það má líka sjá gesti sem ætla að leggja okkur lið. Hér er háttsettur maður úr Landsbankanum ( það á kannski að fá lán ef ekkert fiskast'?), hér er maður sem starfar við sjónvarpið á vellinum og hér er varnarliðsmaður. Kannski að þorskurinn sé farinn að tala ensku'? Nú það er ekki til setunnar boðið, klukkan er orðin sjö og skipstjórinn öskrar “sleppa!” Það er með naumindum að kokkurinn sleppur um borð, því að auk þess að vera með heilan skrokk af lambakjöti þá er hann með ýmislegt annað góðgæti sem hann reynir að láta bera lítið á. Hann er nefnilega farinn að þekkja matvendni sumra í hópnum og því eins gott að þeir viti sem minnst um hvað ofan í þá fer. Já það er mikið lagt á kokkinn um borð í bát. Eins og góðra kokka er siður er hann strax byrjaður að elda hafragraut og undirbúa dýrindis morgunmat Á meðan sitja félagarnir í messanum, ræða þjóð- málin og ýmislegt fleira, jafnvel rammpólitískt, því hér má ræða pólitík en það er ekki leyfilegt á fundum. Fljótlega kemur skipstjórinn (alltaf svangur, ætli hann fái ekkert aö boröa heima?) Ég heyri að hann spyr strax um framsókn- armanninn úr Sparisjóðnum, og svo bölvar hann í sand og ösku að hann skuli ekki vera með. Hann er sennilega sjóveikur segir annar framsóknarmaður í hópnum. Hann hefði nú bara gott af að gu..svolítið segir skipstjórinn. FAXI 39

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.