Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 24

Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 24
FORSÍyREIN SAMEINING SJÚKRflHUSfl_ Olgar undir Það ólgar undir niðri vegna sameiningar Landsþítalans og Sjúkrahúss Reykjavíkur í eitt sjúkrahús; Landspítala- Háskólasjúkrahús. Olgan snýst m.a. um stjórnun og stöðuveitingar, uppsagnir og endurráðningar og ítök Háskólans. Stjórnendum, sem sagt hefur verið upp og færðir til í störfum, þykir að sér vegið. Þá þykirýmsum sem framtíðarsýn stjórnenda hins nýja sjúkrahúss sé ekki skýr. Eða eins ogþað er orðað: „Þegar við bætist að bílstjórinn er ekki alltafmeð það á hreinu hvert ekið er gerirþað vandamálið enn stærra. “Rætt er um ávinn- ing stórrekstrar og að komist verði hjá tvöföldun kostn- aðar við kaup á sérhæfðum tæknibúnaði og að sérhæfðu starjsfólki verði sömuleiðis ekki skipt á marga staði. En hvað með gömlu góðu samkeppnislögmálin, eiga þau ekki við þegar sjúkrahús eru annars vegar? Hefur aldrei verið metingur á milli sjúkrahúsa - sjúklingum til góðs? Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Olafsson Magnús Pétursson, sem áður starfaði í fjármálaráðuneyt- inu, hefur tekið að sér að stýra því stóra verkefni að sameina Landspítalann og Sjúkrahús Reykjavíkur og endurskipuleggja starfið svo úr verði vel rekið fyrirtæki. For- senda þess að farið var í að sameina sjúkrahúsin tvö, í kjölfar þess að Borgarspítali og Landakot sameinuðust, voru miklir rekstrarerfiðleikar, ekki síst á Borgarspítala. Ríkið og Reykja- víkurborg sömdu um sameininguna og var Magnús ráðinn for- stjóri 1999. „Það lágu fyrir álit bæði innlendra og erlendra sér- fræðinga um að skynsamlegast væri að sameina spítalana í heild og sér í lagi smáar sérgreinar sem til væru á báðum stöð- um,“ segir Magnús. „Það var talið hagkvæmt rekstrarlega og faglega var það talið skila mun meiri árangri en að reka tvær samsvarandi deildir eða sérgreinar á sitt hvorum spítalanum.“ Sviðsstjórar valdir Þann 1. okt. 2000 voru valdir sviðsstjórar yfir hvert af 11 sviðum Landspítala-Háskólasjúkrahúss. Sviðun- um er stjórnað af tveimur sviðsstjórum, þ.e. sviðsstjóra lækn- inga og sviðsstjóra hjúkrunar. „Sameiginlega bera sviðsstjórar ábjTgð á stjórnun og rekstri sviðsins. Þeir koma úr röðum stjórnenda sjúkrahúsanna og eru valdir til Jjögurra ára í senn. Sviðsstjórar eru yfirmenn hvers sviðs og þar með yfirmenn yf- irlækna í stjórnunarlegu tilliti. Yfirlæknar í sérgreinum bera aftur á móti faglega ábyrgð á því að lækningar séu eins og þær geta bestar verið.“ Yfirlæknar deildu hart á þessa skipan og töldu vald sitt og sviðsstjóra skarast nokkuð og vildu fá úr því skorið hverjir væru raunverulegir yfirmenn deildanna; héldu m.a. um það fjölsóttan fund. Stærsta sviðið veltir um 2,4 milljörðum króna árlega og starfsmenn eru milli fimm og sex hundruð svo þarna er gríðarlega umfangsmikill rekstur sem líkja má við allstórt fyrirtæki. Forystan valin Víða þar sem farið var að sameina sérgreinar kom upp sú staða að tveir eða fleiri yfirlæknar voru að störfum. Stöður voru auglýstar og yfirlæknum sagt upp og hefur mikil ólga legið undir og hún stundum sést opinberlega. Læknum þykir að sér vegið og telja margir að betra sé að hafa óbreytt ástand og sama ijölda yfirmanna þótt deildir séu sameinaðar. „Það er ekki vænlegt að mínu mati að hafa marga yfirmenn yfir hverri sérgrein eða deild," segir Magnús. Með einhverjum hætti þarf að velja menn til forystu og ákveðið var að segja ýmsum yfirmönnum upp og auglýsa nýjar stöður. Þar sem aug-

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.