Frjáls verslun - 01.04.2001, Qupperneq 37
ust sumarið 1997. Dóttir þeirra er Helena Ýr
Wessman, f. 21. október 1998.
Menntun Róbert lauk stúdentsprófi frá MS
vorið 1989. Hann útskrifaðist sem viðskiptafræð-
ingur (Cand. Oecon.) frá Háskóla íslands 1993.
Ferill Forstjóri Delta frá 1999. Róbert starfaði
hjá Samskipum 1993-1999 og gegndi þar ýmsum
stjórnunarstörfum. Hann var innheimtusljóri
1993-1994, deildarstjóri útflutningsdeildar 1994
1998 og framkvæmdastjóri Bischoff Group
1998-1999. Hann sat í stjórnum ýmissa dótturfé-
laga lýrirtækisins 1997-1999. Róbert var stunda-
kennari i stærðfræði við viðskiptafræðideild Há-
skóla íslands 1992-1993.
Persóna Róbert er kappsfullur keppnismað-
ur, einbeittur og heiðarlegur, sem kemur beint
fram, en getur verið tapsár. Hann hlustar á rök
annarra og tekur tillit til fólks. Hann er
skemmtilegur á mannamótum, góður vinur
vina sinna, léttur og þægilegur, afar metnaðar-
gjarn enda kom fljótlega í ljós á menntaskólaár-
unum að hann ætlaði sér stóra hluti í viðskipta-
lífinu, bæði vegna þess að hann talaði opinskátt
um það og vegna þess hve mikið kapp hann
lagði á námið. Hann hefur látið vinnuna hafa al-
gjöran forgang í lífi sínu síðustu árin og því
misst nokkuð sambandið við gamla félaga. Á
Samskipsárunum var hann undir miklu álagi
og var stundum svo stressaður og þreytulegur
að vinum hans stóð ekki á sama. Tíminn hjá
Delta hefur hins vegar verið honum góður og í
kjölfarið er yfirbragðið mun léttara.
Róbert Wessman, forstjóri Delta, hefur góða yfirsýn, er fljótur að skilja aðalatriði frá
aukaatriðum og skipulagður í starfi. Hann kemur beint fram, segir skoðanir sínar
hreint út en hlustar þó á rök annarra og tekur tillit til og leitar til sinna samstarfs- og
undirmanna. Myndir: Geir Ólafsson
Stjórnandi Róbert er ungur, óþolinmóður og
metnaðarfullur leiðtogi sem hefur tekist að
sanna sig í starfi sem forstjóri Delta, að sögn
Ottós Björns Olafssonar, fv. stjórnarformanns.
Nokkurra efasemda gætti innanhúss þegar hann var ráðinn en
hann hefur náð miklum árangri í rekstri fyrirtækisins og hefur
í dag áunnið sér virðingu og vinsældir meðal starfsmanna.
Hann þykir góður stjórnandi. Hann er sagður hafa innleitt nýj-
an stjórnunarstíl innan fyrirtækisins, t.d. með vikulegum og
mánaðarlegum fundum helstu stjórnenda og millistjórnenda
þar sem farið er yfir stöðuna. Starfsemi Delta miðast öll við það
að setja sér markmið og ná þeim og þykir sú stefna hafa skilað
mjög góðum árangri. Sjálfur er Róbert ákafur, kappsamur, ein-
beittur og duglegur forstjóri sem er fljótur að ganga í verkin og
vinnur langan vinnudag. Sagt er að hann sé kröfuharður en
geri aldrei meiri kröfur til annarra en sjálfs sín. Hann er sagð-
ur virkur forstjóri og sanngjarn maður sem gott sé að vinna íýr-
ir. Hann gefur samstarfsmönnum sínum svigrúm og umboð til
að vinna verkin en fýlgist vel með og ætlast til að þeir beri
ábyrgð á verkum sínum. Hann hefur góða yfirsýn, er fljótur að
skilja aðalatriði frá aukaatriðum og er vel skipulagður í starfi
sínu. Sem stjórnandi kemur hann beint fram, hefur ákveðnar
skoðanir og segir þær hreint út, tekur rökum þeirra sem hafa
meiri fagþekkingu en hann sjálfur og tekur tillit til og leitar til
sinna samstarfs- og undirmanna. í samtali við Björn Aðal-
steinsson, forstöðumann markaðssviðs, kemur fram að Róbert
leggi mikið upp úr skýrri verkaskiptingu og eftirfylgni. Hann
fylgist vel með, sé vel sýnilegur og aðgengilegur fyrir alla
starfsmenn. Hann sé sér fyllilega meðvitaður um gildi hins fé-
lagslega þáttar og sé venjulega hrókur alls fagnaðar þegar eitt-
hvað er um að vera hjá starfsfólkinu.
Gallar Kostir manna geta stundum talist til galla. Þannig þyk-
ir Róbert stundum full tilætlunarsamur og kröfuharður á sjálfan
sig og sína samstarfsmenn og smámunasamur, vill vita óþarf-
lega mikið þegar honum nægir kannski að vita niðurstöðuna.
Hann vinnur mjög mikið, þó það hafi minnkað heldur síðustu
misserin, og virðist hið mikla vinnuálag hafa að einhveiju leyti
komið niður á félagslegum tengslum hans og áhugamálum.
Ahugamál Tónlistin var helsta áhugamál Róberts í æsku en
hann spilaði á trompet frá níu ára aldri í sjö ár, þar af var hann
í tvö ár í FÍH. Önnur áhugamál voru íþróttir, svo sem skíði,
langhlaup, júdó, sund og frjálsar íþróttir. í dag ver hann frítíma
37