Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 48

Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 48
GESTflPENNI SKflTTfllÆKKUN fl FYRIRTÆKI_ Lækkum skatta á fyrirtæki! Hér ergott mál á ferðinni. Ekki veitir afað lœkka skatta á fyrirtæki nú þegar áföllin af gengissiginu ganga yfirflest öll fyrirtæki. Skatta- lækkunin kynni einnig að hjálpa til við að selja erlendum aðilum íslensk hlutabréf ogþar með að styrkja krónuna. Nú vil ég að þessu sé hrint í framkvæmd svo að skattalækkun niður í 15- verði að veruleika á næstu 2-3 árum. Eftir Jafet Ólafsson Umræðan um lækkun skatta á fyrirtæki hefur verið töluverð eftir að Davíð Oddsson forsæt- isráðherra varpaði hugmyndinni fram á síð- asta Viðskiptaþingi Verslunarráðsins. Forsætisráð- herrra taldi reynslu af skattalækkunum góða, bæði fyrirtækin og ríkissjóður hefðu hagnast á henni og sameiginlega ættu þessir aðilar enn eftir að njóta góðs af skattalækkun yrði hún að veruleika. Hann bætti við að með skattalækkun gætu fyrir- tæki frekar staðið undir betri launum starfs- manna. Þetta þótti nokkuð djarflega mælt og forsætis- ráðherra hefði örugglega Jafet Olafsson, framkvœmdastjóri Verðbréfastofunnar, er gestapenni Frjálsrar verslunar að þessu sinni. Hann hvetur til þess að hugmyndir forsœtisráðherra á Viðskiþtaþingi Verslunarráðs um skattalœkkanir á fyrirtæki komi til framkvœmda á nœstu tveimur til þremur árum. ekki sagt þetta nema hafa baklandið tryggt og hinn stjórnar- flokkurinn styddi skattalækkunaráform. Það þótti enn meiri tíðindum sæta í byrjun maí að formað- ur Samfylkingarinnar tæki undir þessar hugmyndir, skyn- samur maður Össur. Menn eiga ekki að vera á móti bara til að vera á móti tillögum stjórnarflokkanna. Hér er gott mál á ferðinni og ekki veitir af að lækka skatta nú þegar áföllin af gengissiginu ganga yfir flest öll fyrirtæki. Þetta kynni einnig að hjálpa til við að selja erlendum aðilum íslensk hlutabréf, og þar með að styrkja krónuna. Nú á að hrinda þessu máli í framkvæmd svo að skattalækk- un niður í 15-20 prósentustig verði að veruleika á næstu 2-3 árum. En það er önnur hlið á þessu máli. Island gæti með skattalækkun- um laðað til sín erlend fýrirtæki. Við erum ekki bundin af samningum við Evrópusambandið í þessu efni og höfum því mun meira svigrúm en flestar aðrar þjóðir. En til þess að fá fyrirtæki til að skrá sig á Islandi þarf öfluga mark- aðssókn. Erlendir fjárfestar hafa ekki sýnt ís- lenskum verð- bréfamarkaði mikinn áhuga og fá erlend fyrir tæki þekkja til 48

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.