Frjáls verslun - 01.04.2001, Page 48
GESTflPENNI SKflTTfllÆKKUN fl FYRIRTÆKI_
Lækkum skatta
á fyrirtæki!
Hér ergott mál á ferðinni. Ekki veitir afað
lœkka skatta á fyrirtæki nú þegar áföllin af
gengissiginu ganga yfirflest öll fyrirtæki. Skatta-
lækkunin kynni einnig að hjálpa til við að selja
erlendum aðilum íslensk hlutabréf ogþar með að
styrkja krónuna. Nú vil ég að þessu sé hrint í
framkvæmd svo að skattalækkun niður í 15-
verði að veruleika á næstu 2-3 árum.
Eftir Jafet Ólafsson
Umræðan um lækkun skatta á fyrirtæki hefur
verið töluverð eftir að Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra varpaði hugmyndinni fram á síð-
asta Viðskiptaþingi Verslunarráðsins. Forsætisráð-
herrra taldi reynslu af skattalækkunum góða,
bæði fyrirtækin og ríkissjóður hefðu
hagnast á henni og sameiginlega
ættu þessir aðilar enn eftir að
njóta góðs af skattalækkun
yrði hún að veruleika.
Hann bætti við að með
skattalækkun gætu fyrir-
tæki frekar staðið undir
betri launum starfs-
manna. Þetta þótti nokkuð
djarflega mælt og forsætis-
ráðherra hefði örugglega
Jafet Olafsson, framkvœmdastjóri
Verðbréfastofunnar, er gestapenni
Frjálsrar verslunar að þessu sinni.
Hann hvetur til þess að hugmyndir
forsœtisráðherra á Viðskiþtaþingi
Verslunarráðs um skattalœkkanir á
fyrirtæki komi til framkvœmda á nœstu
tveimur til þremur árum.
ekki sagt þetta nema hafa baklandið tryggt og hinn stjórnar-
flokkurinn styddi skattalækkunaráform.
Það þótti enn meiri tíðindum sæta í byrjun maí að formað-
ur Samfylkingarinnar tæki undir þessar hugmyndir, skyn-
samur maður Össur. Menn eiga ekki að vera á móti bara til
að vera á móti tillögum stjórnarflokkanna. Hér er gott mál á
ferðinni og ekki veitir af að lækka skatta nú þegar áföllin af
gengissiginu ganga yfir flest öll fyrirtæki. Þetta
kynni einnig að hjálpa til við að selja erlendum
aðilum íslensk hlutabréf, og þar með að
styrkja krónuna. Nú á að hrinda þessu
máli í framkvæmd svo að skattalækk-
un niður í 15-20 prósentustig verði að
veruleika á næstu 2-3 árum.
En það er önnur hlið á þessu
máli. Island gæti með skattalækkun-
um laðað til sín erlend fýrirtæki. Við
erum ekki bundin af samningum við
Evrópusambandið í þessu efni og
höfum því mun meira svigrúm en
flestar aðrar þjóðir. En til
þess að fá fyrirtæki til
að skrá sig á Islandi
þarf öfluga mark-
aðssókn. Erlendir
fjárfestar hafa
ekki sýnt ís-
lenskum verð-
bréfamarkaði
mikinn áhuga
og fá erlend
fyrir tæki
þekkja til
48