Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 53
ÖRYGGIÐ fl NETINU
tækisins finnst ekki á Netinu," segir hann og bætir við að
þetta geti reynst mjög alvarlegt fyrir fyrirtækin.
„Microsoft fyrirtækið fær t.d. um 60 milljónir heimsókna á
dag og þess vegna var mjög alvarlegt þegar fyrirtækið datt úr
sambandi í heilan sólarhring í endaðan janúar vegna þess að
þeir hönnuðu DNS kerfið sitt á rangan hátt. Það er ekkert
smá mál fyrir svona fyrirtæki," segir Pétur.
- Hvað með aðrar öryggisveilur?
„Það eru til aðrar öryggisveilur í ýmsum stýrikerfum en það
sem var svo sérstakt við þessa villu og gerði hana að einni al-
varlegustu öryggisveilu sem hefur komið upp á Netinu frá
upphafi var hversu margir nota þennan hugbúnað. Aðrar vill-
ur eru bundnar við vélategundir og útgáfur af stýrikerfum og
þær ná kannski bara til örfárra notenda á Netinu. Þessi DNS
villa varðaði svo marga,“ svarar hann.
Miðstýringin er kostur Ástand DNS uppsetningar hjá fyrir-
tækjum er að mati Péturs almennt séð frekar slæmt en þó er
ástandið heldur betra hér á landi en víða erlendis. I Banda-
ríkjunum hefur yfir helmingur fyrirtækja eina eða fleiri villur
í sinni DNS uppsetningu en á íslandi er þetta hlutfall ekki
nema um 30 prósent. „Það er vegna þess að hér höfum við
svo mikla miðstýringu. Hér er ekki eins mikið frelsi í skrán-
ingu á lénum þannig að það er meira eftirlit með hvernig
fyrirtækin skrá sig á Netinu.“S!l
Hvað er Menn og mýs?
Hugbúnaðarfyrirtækið Menn og mýs er ellefu ára gam-
alt. Það hefur um 200 milljóna króna veltu á þessu ári og
er í eigu tveggja einstaklinga, þeirra Péturs Pétursson-
ar og Jóns Georgs Aðalsteinssonar, að 76% og íslenska
hugbúnaðarsjóðsins sem á rúmlega 20% hlut. Starfsemi
fyrirtækisins fer að 99,9% fram erlendis, við sölu á DNS
hugbúnaði, ráðgjöf, þjónustu og kennslu. Hjá fyrirtæk-
inu starfa 21 maður í þremur löndum, Sviss, Bandaríkj-
unum og á íslandi. „Við erum eitt af örfáum fyrirtækjum
í heiminum sem sérhæfa sig á þessu sviði," segir Pétur
Pétursson framkvæmdastjóri.
Hann líkir nafnamiðluninni við pípulögn í húsi. „Við
erum að verða píparar í heimsklassa sem leysum
vandamál út um allan heim og framleiðum besta hug-
búnaðinn, tæki og tól, fyrir pípulagningamennina og
kennum pípulagnir. Nýlega vorum við t.d. með námskeið
í Austin í Texas, í San Francisco og París."
Fyrirtækið ertil húsa að Þóroddsstöðum við Skógarhlíð
í Reykjavík.
Tíminn er e
Tíma- og viðverukerfi Hugar
kki afstæður
(Sýnir viðveru og fjarveru starfsmanna svo sem orlof og veikindi
Jteiknar nákvæmlega vinnutíma skv. skilgreíndum reiknireglum
J?ýr yfir öflugri vaktaskráningu og fjölbrevttri skýrslugerð
(Getur skilað gögnum til flestra launakerfa
(Dflugt tæki til að skrá verkþætti og fylgjast með launakostnaðí
J’rautrevnt hjá hundruðum fyrirtækja og stofnana
H U G U R
www.hugur.is *El540 3000
53