Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 55

Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 55
STJÓRNUN VINSÆLDflKÖNNUN VR stjórnenda! Stjórnendur eru almennt ánægðari með lífið og tilveruna en almennir starfsmenn. Þeir hafa meira álit á fyrirtæki sínu og starf- semi þess, telja starfsandann í fyrirtoekinu betri, hafa meira frelsi til ákvarðanatöku og telja að boðleiðirnar innan fyrirtœkisins séu miklu betri en almennir starfsmenn telja. það sem er að gerast á vinnustaðnum má vinna betur að því að bæta starfsanda," segir Gunnar Páll. í könnuninni var, eins og áður segir, spurt um stjórnun- ina og voru stjórnendur þar að tjá sig um sína eigin stjórn- un og kollega sinna. í svörunum kom í ljós að þeir eru mjög ánægðir með eigin störf og hafa þar allt aðra sýn á sjálfa sig og verk sín en almennir starfsmenn. Stjórnendur eru þeir starfsmenn fýrirtækjanna sem mesta trú hafa á stjórnun og stjórnendum fyrirtækjanna. „Könnunin sýnir að stjórn- endur eru ekki jafn góðir stjórnendur og þeir telja sig vera. Þeir telja sig vera mikla leiðtoga en eru kannski ekki jafn miklir leiðtogar í augum starfs- mannanna og þeir sjálfir telja. I því felast kannski ákveðin sóknar- færi,“ segir hann. Stjórnendur eru almennt ánægðari með lífið og tilveruna en almennir starfsmenn. Þeir hafa meira álit á fýrirtæki sínu og starfsemi þess, telja starfsandann í fyrirtækinu betri, hafa meira frelsi til ákvarðanatöku og telja að boðleiðirnar innan fýrirtækisins séu miklu betri en almennir starfsmenn telja. Þeir eru stoltari af starfi sínu og fýrirtæki, ábyrgðar- fyllri og taka starf sitt og hlutverk af meiri alvöru en almennir starfsmenn. Þeir eru ánægðir með vinnuskilyrði, launakjör og vinnutíma. Hvað metnað varðar sýna þeir frábæra útkomu eða 100 prósent! Stjórnendur Mat stjórnenda og í sumum tilvikum almennra starfsmanna á starfi stjórnenda Þeir eru ánægðir með lífið og tilveruna. Þeir eru ánægðir með stjórnun sína og kollega sinna. Þeir hafa ekki næga yfirsýn að mati almennra starfsmanna. - Þeir telja boðleiðirnar betri en þær eru að mati almennra starfsmanna. Þeir eru jafnlyndir og yfirvegaðir á vinnustað. - Þeir eru ábyrgðarfullir. - Þeir eru stoltari af starfi sínu og fyrirtæki en aðrir starfs- menn. Þeir eru umburðarlyndir og bera virðingu fyrir starfsmönn- um og einkalífi þeirra. - Þeir eru ánægðir með kjör sín.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.