Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 55
STJÓRNUN VINSÆLDflKÖNNUN VR
stjórnenda!
Stjórnendur eru almennt ánægðari með lífið
og tilveruna en almennir starfsmenn. Þeir
hafa meira álit á fyrirtæki sínu og starf-
semi þess, telja starfsandann í fyrirtoekinu
betri, hafa meira frelsi til ákvarðanatöku og
telja að boðleiðirnar innan fyrirtœkisins séu
miklu betri en almennir starfsmenn telja.
það sem er að gerast á vinnustaðnum má vinna betur að því
að bæta starfsanda," segir Gunnar Páll.
í könnuninni var, eins og áður segir, spurt um stjórnun-
ina og voru stjórnendur þar að tjá sig um sína eigin stjórn-
un og kollega sinna. í svörunum kom í ljós að þeir eru
mjög ánægðir með eigin störf og hafa þar allt aðra sýn
á sjálfa sig og verk sín en almennir starfsmenn.
Stjórnendur eru þeir starfsmenn fýrirtækjanna
sem mesta trú hafa á stjórnun og stjórnendum
fyrirtækjanna. „Könnunin sýnir að stjórn-
endur eru ekki jafn góðir stjórnendur og
þeir telja sig vera. Þeir telja sig vera
mikla leiðtoga en eru kannski ekki
jafn miklir leiðtogar í augum starfs-
mannanna og þeir sjálfir telja. I því
felast kannski ákveðin sóknar-
færi,“ segir hann.
Stjórnendur eru almennt
ánægðari með lífið og tilveruna en
almennir starfsmenn. Þeir hafa meira
álit á fýrirtæki sínu og starfsemi þess,
telja starfsandann í fyrirtækinu betri,
hafa meira frelsi til ákvarðanatöku og telja
að boðleiðirnar innan fýrirtækisins séu
miklu betri en almennir starfsmenn telja. Þeir
eru stoltari af starfi sínu og fýrirtæki, ábyrgðar-
fyllri og taka starf sitt og hlutverk af meiri alvöru
en almennir starfsmenn. Þeir eru ánægðir með
vinnuskilyrði, launakjör og vinnutíma. Hvað metnað
varðar sýna þeir frábæra útkomu eða 100 prósent!
Stjórnendur
Mat stjórnenda og í sumum tilvikum
almennra starfsmanna á starfi stjórnenda
Þeir eru ánægðir með lífið og tilveruna.
Þeir eru ánægðir með stjórnun sína og kollega sinna.
Þeir hafa ekki næga yfirsýn að mati almennra starfsmanna.
- Þeir telja boðleiðirnar betri en þær eru að mati almennra
starfsmanna.
Þeir eru jafnlyndir og yfirvegaðir á vinnustað.
- Þeir eru ábyrgðarfullir.
- Þeir eru stoltari af starfi sínu og fyrirtæki en aðrir starfs-
menn.
Þeir eru umburðarlyndir og bera virðingu fyrir starfsmönn-
um og einkalífi þeirra.
- Þeir eru ánægðir með kjör sín.