Frjáls verslun - 01.04.2001, Qupperneq 60
VERSLUN HÖNNUN OG TÍSKfl
Á íslandi eru engar stórar saumastofur og það gengur ekki að fá t.d. buxurnar úr drögtunum fyrst og
jakkana sex vikum seinna. Því var það að við fórum til Tékklands þar sem við komumst í samband
við verksmiðjur sem framleiða fyrir okkur.
að senda efnin frá framleiðanda til verksmiðjanna,“ segir Val-
gerður. „Þetta fyrirkomulag hentar okkur vel og sparar okk-
ur talsverða vinnu í að leita uppi vefnaðarvöruframleiðendur."
Tilraun til útflutnings Þær stöllur fundu fyrir áhuga útlend-
inga á fötunum og ákváðu að reyna fyrir sér erlendis. Fóru á
sýningu og var vel tekið.Við vildum fara þá leiðina að opna
eigin verslanir erlendis og geta þannig haft meiri stjórn á því
hvernig varan væri kynnt ásamt því að vera komin með sýn-
ingarglugga og byggja þannig merkið upp. En þegar til átti að
taka reyndist ekki vera áhugi hjá fjárfestum til að setja upp
verslanir og því hættu þær við það í bili að opna Spaks manns
spjarir erlendis.
„Við lærðum gífurlega af þessu og margt af því nýtist okk-
ur vel,“ segir Björg. „Ur því okkur tókst ekki að opna búð í
París, Róm eða London, þá ákváðum við að flytja okkur í
Bankastrætið og verða sýnilegri erlendum ferðamönnum,"
bætir Valgerður við. „Það verður spennandi að sjá sumarið
þar sem mikilli aukingu ferðamanna hefur verið spáð.“
Aldurslaust fólk Fötin frá Spaks manns spjörum eru nær
aldurslaus, þó svo markhópurinn sé konur á aldrinum 20-45
ára. „Aldur er orðið svo teygjanlegt hugtak - hann sést ekki
lengur á fólki.,“ segir Björg. „Við erum að upplifa það núna að
sjá “aldurslaust" fólk á borð við Tinu Turner. Fólkið á elli-
heimilinu notar strigaskó, jogginggalla og aðrar flíkur sem
fyrir nokkrum árum mátti bara sjá á ungu fólki þannig að það
verður spennandi að sjá hvernig x-kynslóðin sem alin er upp
við tískufatnað frá barnsaldri klæðir sig á elliheimilinu. Úrval-
ið í fatnaði er miklu meira en það hefur nokkurn tíma verið
og það hvernig fólk klæðir sig fer miklu frekar eftir karakter
en aldri og því hvernig fötin fara á viðkomandi.
Tískan er orðin miklu víðfemari og hægt að spila hana
meira eftir eyranu. Við gætum þess að flíkurnar séu góðar í
sniðum og passi á konurnar og okkar markmið er að hver
kona sem gengur héðan út sé nægilega flott til að vekja at-
hygli og vera um leið gangandi auglýsing fyrir Spaks manns
spjarir.“ SD
KODAK DC 3800 og myndirnar lifna við! Frábær
upplausn, mikil skerpa og notendavænt viðmót sem
aðeins fæst með KODAK. Vélin hefur 2 milljónir pixla,
sem hentar mjög vel til auglýsinga- og bæklingagerðar
og úprentunar mynda upp í 21x30 (A4). 2X Stafrænt
Zoom. Linsan er 33 mm með Ijósop 2.8. Vélin er
einstaklega lítil og nett. Með vélinni fylgir USB kortalesari.
KODAK DC 4800 er ein fjölhæfasta stafræna
myndavélin sem komið hefur frá KODAK. Hvort sem
bú ert að taka myndir fyrir vefinn eða í auglýsinga- og
oæklingagerð hefur KODAK DC 4800 alla þá kosti
sem til parf. Vélin hefur 3.1 milljón pixla upplausn sem
tryggir hómarksgæði í stærri útprentanir. Vélinni fylgja
2 minniskort, 16 og 32 MB ásamt góðri tösku.
Kodak
60