Frjáls verslun - 01.04.2001, Qupperneq 62
Fagmennska, metnaður og árangur - Þekkingarsmiðjan aðstoðar
einstaklinga við að ná árangri í starfi með markvissri þjálfun:
Viltu gera betur?
Leiðir að árangri í starfi geta verið margar en eitt er víst að
án réttrar færni og lagni ná menn ekki langt. Krafan um fag-
mennsku vex og viðskiptavinir vilja gæði. Það er ekki nóg að
vera góður ef hinir eru betri, þeir bestu fara lengra. Lykilspurning-
in er: Viltu gera betur það sem þú ert gera, getur þú náð meiri ár-
angri? Markmið Þekkingarsmiðjunnar er að auka færni einstak-
linga í atvinnulífinu með námskeiðum, fyrirlestrum og faglegri
þjálfun. Þekkingarsmiðjan býður upp á sérsniðin og stöðluð nám-
skeið, einkaþjálfun, fyrirlestra og ráðstefnur fyrir stjórnendur,
sérfræðinga og aðra starfsmenn fyrirtækja.
„□II okkar námskeið eru byggð á traustum, fræðilegum grunni þar
sem notaðar eru bestu kenningar og aðferðir hverju sinni og viður-
kennd mælitæki. Unnið er markvisst og námið byggt upp samkvæmt
áhrifaríkum námsaðferðum um leið og það er gert hagnýtt, lifandi og
skemmtilegt. Blandað er saman fyrirlestrum og persónulegum æf-
ingum. Með virkri þátttöku, litlum hópum og hagnýtum verkefnum
stuðla námskeiðin markvisst að því að auka hæfni og þekkingu þátt-
takenda. Mikil áhersla er lögð á opið andrúmsloft og umræður um
námsefnið og vinnustaðinn. Þannig verða námskeiðin persónulegri og
gagnlegri en það skilar sér í betri frammistöðu þátttakenda. Hjá
Þekkingarsmiðjunni starfa þjálfarar sem
eru sérfræðingar á ýmsum sviðum og aðrir sérfræðingar eru kallað-
ir til eftir því sem þörf krefur.
Vinnuferlið á námskeiðunum er nákvæmlega skilgreint til að
tryggja hámarksárangur. Upphaf námskeiðanna felst í mælingu og
sjálfsskoðun. Þ.e.a.s. þátttakendur fá mat á viðeigandi hæfni, þ.m.t.
styrkleikum og veikleikum, með tilliti til árangurs. Til að hjálpa þeim
að meta eigin færni er stuðst við viðurkennd próf og einnig umsagn-
ir frá samstarfsmönnum. Næsta skrefið er að láta reyna á færnina
sem tekin er fyrir. Hlutverk þjálfarans er að benda á það sem vel fór
og það sem hefði mátt gera betur. Eftir hvern hlutverkaleik er síðan
skoðað hvernig gekk og hvað menn geta gert til að gera enn betur.
Þessi aðferðafræði skilar sér í betri árangri viðskiptavina okkar," seg-
ir Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarsmiðjunnar.
„Við leggjum áherslu á að allir þátttakendur taki virkan þátt í nám-
skeiðunum og því höfum við takmarkaðan fjölda á hverju námskeiði. í
stórum hópum er þátttakan oft ekki nógu mikil, m.a. vegna þess að
sumir tjá sig ekki mikið og fjöldinn hefur einnig þær takmarkanir að
ekki allir geta komist að. Við viljum byggja á þjálfun og virkri þátttöku
og höfum hópana litla til að allir taki virkan þátt.
Eitt af því sem við erum stoltust yfir er að
árangur okkar er mælanlegur. í starfi okk-