Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 64
Jón Daníelsson er lektor við London School of Economics, LSE. Hann beinir áhuga sínum að áhœttufjármálum og hefur augun bœði á áhættu-
stjórnun innan fyrirtækja og reglugerðum hins opinbera á því sviði.
Islendingar höfðu ekki reynslu afkreppu á hlutabréfa-
markaðnum ogpað er eftil vill skýringin á pví að
pað pótti fullkomlega sjáljsagt að taka lán til hluta-
bréfakaupa, eins og sumirfjölmiðlar nánast hvöttu
fólk til að gera, er mat Jóns Daníelssonar, lektors við
London School ofEconomics, í samtali við Sigrúnu
Davíðsdóttur. Áhugi Jóns beinist mjög að áhœttufjár-
málum um pessar mundir.
Texti og myndir: Sigrún Davíðsdóttir
Sem fræðimaður vill hann ekki ræða stjórnmálakenningar,
en það var engu að síður stjórnmálaáhuginn sem rak
hann í upphafi í hagfræðinám. Jón Daníelsson hefur fasta
stöðu sem lektor í ijármálum við London School of Economics.
Hann einbeitir sér einkum að áhættu, sem er miðlægt efni í
hagfræðinni þessi árin, og hefur augun bæði á áhættustjórnun
innan fyrirtækja og reglugerðum hins opinbera á því sviði.
Jón tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið
1983, en tímann í menntó segist hann hafa notað í allt mögu-
legt annað en að læra, til dæmis í blaðaútgáfu og önnur fé-
lagsstörf. Hann tók á þeim tíma þátt í félagi frjálshyggju-
manna í MR og var eindregið á frjálshyggjulínunni. „Það
þóttu öfgar þá, en nú hef ég færst inn að miðju, án þess að
hafa skipt um skoðun," skemmtir hann sér við að benda á.
Margt af því sem frjálshyggjan boðaði eru orðnar miðjukenn-
ingar núna, sem jafnvel jafnaðarmannaflokkar hika ekki við
að hafa á stefnuskrá sinni.
Það var áhuginn á ftjálshyggjunni sem beindi athyglinni að
hagfræðinni, en samfara pólitíska áhuganum fór einnig áhugi
á stærðfræði og tækni - þá þarf kannski ekki að taka fram að
auðvitað notar Jón Linux... Það var því hinn tæknilegi hluti hag-
fræðinnar sem Jón beindi athyglinni að. „Eg hafði engan áhuga
á ljármálum á þeim tíma,“ riijar hann upp. Á þeim tíma var hag-
fræði ekki kennd við Háskóla Islands svo leiðin lá til Bandaríkj-
anna þar sem hann lauk Ph.D.-prófi frá Duke háskóla í Norð-
ur-Karólínu árið 1991. Á þeim tíma ætlaði Jón ekki að ílendast
úti, heldur langaði heim og segist hafa verið svo heppinn að þá
hafi verið laus staða í nýrri hagfræðiskor við Háskóla íslands
og þar varð hann lausráðinn lektor.
. Pci/€ á/ueffU'Sie/i/m
draga úr áhrifum
64