Frjáls verslun - 01.04.2001, Qupperneq 68
STJÓRNUN OGSTMFSMANNAMÁL
Gaman í vinnunni
Imjög mörgum fyrirtækjum eru
skrifstofur hannaðar í svokölluðu
opnu rými, án skilrúma eða
veggja á milli fólks. Víðast hvar þar
sem opið rými hefur verið tekið upp
gengur eitt yfir alla og enginn er
með skrifstofu hvort sem um er að
ræða almenna starfsmenn, milli-
stjórnendur eða æðsta stjórnanda.
Lítil fundarherbergi eru gjarnan not-
uð þegar fólk þarf að tala í einrúmi,
hvort sem er í síma eða á fundum.
Þegar stjórnendur eru aðgengilegri
eins og gerist í opnu rými skapast
frjálslegra vinnuumhverfi. Erlendis
eru dæmi um að starfsmenn jafnt sem yfirmenn sjáist þjóta
eftir löngum göngum á hlaupahjólum, sem ekki einungis flýta
fyrir ferðum þeirra, heldur gera einnig ferðina á milli staða í
fyrirtækinu mun skemmtilegri.
Skemmtilegt vinnuumhverfi komið til að vera í Bandaríkjun-
um er það almenn skoðun rannsóknarmanna og stjórnenda í
fyrirtækjum að sú þróun að gera vinnustaði vinalega og
skemmtilega muni ekki ganga til baka. Þessi fyrirtæki halda
ekki einungis betur í starfsfólk heldur er allt að helmingur
nýrra starfsmanna tilkominn vegna ábendinga frá núverandi
starfsfólki. Þetta hefur ekki einungis í för með sér lægri
kostnað við að finna nýja starfsmenn heldur einnig lægri
starfsmannaveltu, sem sparar mikið fé í tengslum við nýráðn-
ingar og nýliðaþjálfun. Starfsfólk sem hefur gaman af vinn-
unni er auk þess afkastameira og meira skapandi. Auðveldara
er að skapa skemmtilegan vinnustað í nýjum, smærri fyrir-
tækjum með jákvæðu kraftmiklu fólki en í stórum og eldri
fyrirtækjum þar sem fyrirtækjamenningin á sér langa hefð,
þó að þar með sé auðvitað ekki sagt að ekki sé hægt að ná ár-
angri í slíku umhverfi.
Hláturinn lengir lífið Þetta er ekki bara orðatiltæki heldur
sýna rannsóknir að hláturinn hefur mikil áhrif á líkamsstarf-
semina.
Vissir þú eftirfarandi...?
1. Meðalleikskólabarn hlær eða brosir 400 sinnum á dag. Sú
tala lækkar í aðeins 15 sinnum á dag við 35 ára aldur.
2. Fólk brosir aðeins 35% af þeim tíma sem það álítur sig
brosa.
3. Hlátur gerir það að verkum að ákveðin endorfín losna í
líkamanum, sem eru 10 sinnum áhrifameiri en verkjalyfið
morfín og valda vellíðan hliðstætt og eftir að líkaminn hef-
ur reynt á sig.
4. I hvert sinn sem hlegið er brennir líkaminn 3,5 hitaein-
ingum.
5. Við hlátur eykst súrefnisupptaka líkamans, sem hefur
áhrif á endurnýjun frumna. Þar að auki hækkar sársauka-
þröskuldur, ónæmiskerfið styrkist og
streita minnkar.
Bandarísk rannsókn sem gerð var á
meðal 737 stjórnenda leiddi í ljós að
98% þeirra réðu frekar starfsmenn
sem höfðu kímnigáfu en þá sem voru
sneyddir henni. Önnur rannsókn
sýndi að 84% stjórnenda töldu starfs-
menn sem voru með góða kímnigáfu
sinna starfi sínu betur en þeir sem
höfðu litla sem enga kímnigáfu.
Rannsóknir sýna að starfsfólk sem
hlakkar til að fara í vinnuna er trygg-
ara fyrirtækinu ásamt því að forföll-
um og veikindadögum fækkar. Sterk tengsl eru milli ánægju
starfsfólks og ánægju viðskiptavina enda hafa þjónustukann-
anir leitt í Ijós að viðhorf viðskiptavina til fyrirtækisins batnar
á sama tíma og starfsmönnum líður betur í starfi sínu. Rann-
sóknarmönnum ber saman um að starfsmenn sem hafa gam-
an af vinnunni þjáist síður af streitu, vinni betur saman þ.e.
starfsandinn sé betri, séu meira skapandi og afkasti meiru.
Sem dæmi þá jókst salan um 9,9% á einum ársíjórðungi í
bókaverslun í Bandaríkjunum í kjölfar ráðgjafar á sviði vinnu-
umhverfis eftir langt tímabil þar sem salan hafði staðið í stað.
Hvað er unnt að gera til að gera vinnustaðinn skemmtilegri?
Þegar skipuleggja á uppákomur á vinnustöðum skiptir máli
að velta fyrir sér hvað höfði til starfsfólksins. Skiptir þar
miklu kynjaskipting, aldur hópsins og áhugamál, svo eitthvað
sé nefnt. Matt Weinstein er aðalfrumkvöðullinn í Bandaríkj-
unum á sviði breytinga til betri vega á vinnustöðum og hug-
myndasmiður Fun at Work Day í Bandaríkjunum, sem hald-
inn er 5. apríl ár hvert. Tilgangur þessa dags er að vekja fólk
til meðvitundar um mikilvægi þess að starfsfólk hafi gaman af
fleiru í vinnunni en þeim verkefnum sem fyrir það eru lögð.
Weinstein hefur skrifað margar bækur, s.s. Managing to
Have Fun, Fifty Ways to Work Less, Play More, and Earn
More (ásamt Luke Barber) og Work like Your Dog, sem er
nýjasta bók hans. Hann hefur rekið fyrirtækið Playfair í Kali-
forníu frá árinu 1978. Hjá honum starfa 25 ráðgjafar sem að-
stoða yfir 400 fyrirtæki ár hvert við að finna hugmyndir til að
bæta fyrirtækjamenningu í takt við áhugasvið starfsmann-
anna.
Dæmi um hugmyndir Weinstein fyrir skjólstæðinga sína:
1) Cable & Wireless Optus í Sidney, Ástralíu nefndu hæðir í
skrifstofubyggingunni eftir starfsmönnum. Á hverri hæð
var skilti með mynd af starfsmanninum og smá greinar-
gerð um hann og starf hans.
2) Útibú Sprint símafyrirtækisins í Kansas City í Bandaríkj-
unum breytti Fun at Work Day í stranddag. Hvítum sandi
var komið fyrir í fyrirtækinu, suðræn tónlist leikin og
Þarsem starjsfólk verstærstum hluta
dagsins í vinnunni er mikilvægt ab því
þyki ekki einungis gaman að starfi sínu
heldur njóti einnig menningarinnar
innan fyrirtækisins ogþess félagslíjs sem
þar er í boði. Ad gera vinnustaði vina-
lega og skemmtilega getur verið ein leið
til að halda í hæft starjsfólk.
Eftir Þórunni Elvu Guðjohnsen
68