Frjáls verslun - 01.04.2001, Side 70
Þungun er
Fyrirhugaðar barneignir
FEIMNISMflL VIÐ RflDNlNGflR
eru viðkvæmt umrœðuefni sem flestir forðast að ræða í ráðningar-
Stjórnendur hljóta þó að velta fyrir sér hversu lengi nýráðnir starfsmenn haldast
þar til kemur að barnsburðarleyfi og jafnvel hvort borgi sig að þjálfa upp
starfsmann efhann hverjursvo á braut innan nokkurra missera.
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Eflaust er mismunandi hvað menn eru opnir fyrir þessari umræðu
hjá fyrirtækjum. Það er gangur lífsins að konur eignist börn þannig
að menn hljóta að gera ráð fyrir slíku. Ég þekki ekki dæmi þess að
konur séu spurðar um barneignir í ráðningarviðtölum og veit ekki til
þess að það sé mikið gert. I eina skiptið sem ég hef rætt þessa hluti
við kvenmann var þegar ég fyrirhugaði að senda konu í þjálfunar-
búðir til Ameríku vegna verkefnis sem átti að standa yfir í meira
en eitt ár. Viðkomandi var á góðum aldri, barnlaus og í sam-
búð og því fannst mér eðlilegt að ræða þetta opinskátt við
hana. Það endaði með því að konan var send til Ameríku,
kom til baka og kláraði verkefnið. Hún varð síðan ólétt
fljótlega eftír það,“ segir Ólafur Jón Ingólfsson, starfs-
mannastjóri hjá Sjóvá-Almennum.
Má ekki spyrja... Þunganir og fyrirhugaðar barneign-
ir eru feimnismál í íslensku atvinnulífi, sem flestír forð-
ast að nefna, umræðan er viðkvæm og sjaldan uppi á
borðinu - nema þá helst í lokuðum hópi stjórnenda.
Starfsmannastjórar kannast þó vel við þessa um-
ræðu því að hún kemur upp öðru hvoru í þeirra
hópi og þar eru skoðanir skiptar. Ólafur Jón kenn-
ir starfsmannastjórnun við Endurmenntunarstofn-
un Háskólans og kemur inn á þessa umræðu í sinni
kennslu. „Þar hefur fólk í atvinnulífinu tjáð sig um
málið og telur að ekki megi leggja þessa spurningu
fyrir umsækjendur. Það er viðhorf út af fyrir sig. En
ég hef verið mjög opinn fyrir þessu. Það er starfsregla
hjá okkur að tala strax út um málin og fá umræðuna
strax upp á borðið ef þörf krefur. Ég hef ekki áhyggjur af
barneignum við ráðningar og slíkt kemur ekki inn sem nein for-
senda við ráðningar hjá okkur. Ég hef ráðið tíl starfa konu, sem ég
hef beðið eftír meðan hún var í barnsburðarleyfi," segir hann.
Spurningar á borð við framtíðarfyrirætlanir í barneignum eru
lífseigar og ljóst að þær koma fyrir í ráðningarviðtölum en skoðan-
ir eru skiptar um það hversu algengar þær séu. Katrín S. Óladótt-
ir, ráðningarstjóri hjá PwC, segir að spurningar af þessu tagi hafi
verið talsvert algengar fyrir fimm til tíu árum en þeim hafi farið
fækkandi á síðustu árum og heyri tíl undantekninga í dag. „Ég er
mjög mikið í ráðningarviðtölum með stjórnendum fyrirtækja og
ég verð mjög lítið vör við að spurt sé um þetta. Ég held að það sé
liðin tíð. Menn spyija jafnt konur sem karla um framtíðarfyrirætl-
anir og hafa þá ýmislegt í huga, t.d. framhaldsnám, þvi að þeir
gera sér grein fyrir að þeir geta misst fólk af ýmsum ástæðum,