Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 83
ark
um. „Eitt af því sem þarf að huga miklu betur að við
TEKTÚR hönnun húsa er val á gleri,“ segir Jón Olafur. „Það
margborgar sig að kaupa gler sem dregur úr birtu sól-
arljóssins og útilokar hitann vel og auk þess að ganga úr skugga
um að það standi undir væntingum.“ Þegar gengið er um húsið
eru háar hurðir og glerveggir fyrir skrifstofum áberandi. Gler-
ið er sandblásið og mismunandi mynstur á því. Þessir glervegg-
ir gefa húsinu skemmtilegan blæ og létt yfirbragð. A milli hús-
anna er hægt að ganga m.a. eftir þakinu og þar hefur verið far-
in sú leið að byggja glerbyggingu. I henni er timburgólf og nota-
legt er að ganga á milli og horfa yfir voginn. 31]
Gult leikur með bláu
TÖlvudreifing er í húsinu nr. 27 við Stórhöfða og hefur þar
neðstu hæðina til umráða undir lager og verkstæði en þriðju
hæðina fyrir söluskrifstofur og aðra starfsemi. Tölvudreifing
er í eigu Tæknivals, Aco, Opinna kerfa, Viggós H. Viggóssonar
og Kristjáns Olafssonar. Innanhúsarkitekt er Erling G. Petersen.
Fyrirtækið var á Krókhálsi 5a svo ekki var farið langt þegar ljóst
varð að fyrirtækið óx um 3040% á ári og húsnæðið dugði engan
veginn og flutti það á Stórhöfðann í janúar sl. „Við vorum búnir
að ákveða að mestu hvernig við vildum hafa húsnæðið og arki-
tektinn útfærði þær hugmyndir okkar í samvinnu við okkur,“ seg-
ir Viggó H. Viggósson, framkvæmdasljóri Tölvudreifingar. „Hér
vinna nú 23 starfsmenn en við gerum ráð fyrir því að það muni
Hjá Tölvudreifingu. Móttakan er opin, med bogadregnu borði. Hœgt
er að fara út á þakið um dyrnar í endanum.
fjölga nokkuð og því er vel rúmt um alla ennþá. Rýmið er hálfop-
ið og það hentar okkur ágætlega en þó höfum við lokað inn í sölu-
deildina frá afgreiðslunni til að skapa frið þar inni. Viggó segir
blátt vera einkennislit fyrirtækisins en arkitektinn hafi ákveðið
að nota hann fremur sem áherslulit en aðallit og það skilar sér
vel. Annars er grár litur sá sem mest er af en hann venst vel og
þykir þægilegur að vinna með. Hurðir eru úr rauðri eik og á
gólfum er linolelum dúkur að mestu, þó er parket í fundarher-
bergi. Fundarborðið er samsett úr minni einingum og segir
Viggó það gert svo auðvelt sé að breyta fundarherberginu á
skömmum tíma í skólastofu ef á þurfi að halda, því námskeiða-
hald af ýmsu tagi fer fram hjá fyrirtækinu sem hefur umboð
fyrir Microsoft á Islandi. 33
Byggingaraðilar Stórhöfða 21-39 völdu
VELFAC ál/tréglugga í öll húsin!
Kostir VELFAC eru m.a.
Létt viðhald
Fallegt útlit
Háeinangrað gler
Langur ábyrgðartími
Örugg afhending
Hagstætt verð
Stórhöfði 21-39
t
Ide\
Sundaborg 7-9 104 Reykjavik sími 5688104 fax 5688672 idex@idex.is
Leitið upplýsinga og
tilboða í sima 568 8104
83