Frjáls verslun - 01.04.2001, Qupperneq 84
Útsýnið er vœgast sagt frábært til norðurs. Sófa hefur verið komiðjyrir við stóran glugga þar
sem hægt er að horfa út í fjöruna ogyfir í Viðey.
Sindri með allt í stáli
ARKITEKTUR
Niðri við sjó, á móts við Við-
ey, er að rísa byggð stórra f TEKTÚR
fyrirtækja. Nýjasta húsið
er hús Sindra, sérkennileg og falleg bygging
sem fellur inn í umhverfið, grátt grjótið, sjó-
inn og skeljasandinn, sem gerir að verkum
að manni þykir eins og maður sé í útlöndum.
„Húsið er innflutt af Sindra og því sem næst
allt sem í því er,“ segir Guðni Pálsson, arki-
tekt hjá A1 arkitektum, en hann hannaði hús-
ið. „Til að undirstrika innganginn og gera
hann sýnilegri gerðum við úr honum eins
konar skúlptúr. Það sama gerðum við raunar
við kaffistofuna, sem hægt er að nota sem
ráðstefnusal ef vill, og skrifstofurnar sem
standa út úr húsinu, en í þeim er mikið gler.“
Birtu hleypt inn Verslunin er á neðri hæð-
inni og þar eru ráðgjafar með skrifstofur og
fundaraðstöðu. Efri hæðin er aðalskrifstofu-
hæðin og þar er einnig matsalur. Skrifstof-
urnar við norðurvegginn mynda stóran boga
og á efri hæðinni liggja þær að bogadregnum
svölum. Þeim er, eins og skrifstofum á neðri
hæðinni, lokað með háum glervegg sem
gegnir tvíþættu hlutverki. Annars vegar að
hleypa inn birtu og hins vegar að skapa til-
finningu um opið rými. Við vesturvegginn á
efri hæðinni eru skrifstofurnar staðsettar
bak við íjóra stóra veggi, sem eru málaðir í
sterkum litum og standa nánast eins og fríir
úti á gólfinu en þeir gefa skemmtilega,
íjöruga mynd og lyfta andrúmsloftinu. Mat-
salurinn tengist skrifstofurýminu með bláum
bogadregnum vegg.
Stál er áberandi í nýja Sindrahúsinu sem stendur vid Klettagarða.
Það er vel við haefi hjá jýrirtæki sem selur stál í stórum stíl.
Glerveggimir á efri hæð Sindrahússins mynda einskonar listaverk þegar
hurðimar eru allar lokaðar. Veggurinn er bogadreginn og það myndast
skemmtileg stemmning þegar horft er á hann.
stálið látið njóta sín „Varðandi efnisval þá
er Sindri stærsti innflytjandi landsins á stáli
og það var sjálfgert að sýna það. Húsið er í
sjálfu sér skemma og við ákváðum vera ekk-
ert að fela þá staðreynd heldur leggja á hana áherslu og hafa
áferðina frekar hráa. I rigningu glymur í þakinu og vindurinn
lætur í sér heyra. Bitar og súlur eru sýnileg og í sumum til-
fellum ganga súlur í gegnum gólf í miðri skrifstofu. Allt burð-
arstál er málað í dökkgráum stállit. Loft eru klædd með göt-
uðum, galvaniseruðum báruplötum. Milligólf, sem er úr
steyptum einingum, er látið standa hrátt og allar lagnir sýni-
legar. Gólf á neðri hæð eru flísalögð og dúkur er á efri hæð,
nema í matsal - þar er eikarparket. Stigi og handriðin eru úr
lökkuðu og fremur grófu smíðastáli. A móti spila svo gler
bogaveggurinn og lituðu veggirnir við vesturhliðina. 33
Arkitekt hússins er Guöni Pálsson, A1 arkitektum.
Verkfræðistofan Burður sá um verkfræðiteikningar.
Rafmagnshönnun var í höndum raflagnateiknistofu Thomasar Kaaber.
VSO sá um skipulagningu vörugeymslu og brunahönnun.
Friðjón og Viðar voru aðalverktakar byggingarinnar.
Eftirlit var í höndum Stanleys Pálssonar.
84