Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 88

Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 88
Nú er hægt að fá úrval góðra vína í Reykjavík. FV-myndir: Geir Olafsson Vín í Reykjavík eim fjölgar stöðugt sem kjósa fremur að drekka léttvín en sterka drykki. Þetta er svipuð þróun og annars staðar í hinum vest- ræna heimi, neysla léttra vína eykst stöðugt á kostnað sterkra drykkja. í Danmörku og raunar í fleiri löndum Evrópu, hefur einnig dregið verulega úr bjórdrykkju. Astæðan er fyrst og fremst sú að vín er hollara en aðrir áfengir drykkir og ijölbreytnin meiri. Nú er hægt að fá úrval góðra vína í Reykjavík. Nokkur veitingahús í Reykjavík bjóða upp á ágætis úrval vína. Þar ber fyrst að nefna Sommelier við Hverfisgötu, Hótel Holt, Argentínu, Humarhúsið, La Primavera, en á þessum stöð- um er hægt að fá úrval áhugaverðra ítalskra vína. Mekka víná- hugafólks er þó Vínbúðin Heiðrún, Stuðlahálsi 2. A sérlistanum er gott og forvitnilegt úrval vína. Hægt er að panta sérlistavín í öðrum vínbúðum en skemmtilegast er þó að heimsækja Heiðrúnu og skoða vínin. Vínbarinn Fyrsti vínbarinn var opnaður í júlí á síðastliðnu ári. Vínbarinn er í hjarta Reykjavíkur, Kirkjutorgi 4, eiginlega mitt á milli þinghússins og Dómkirkjunnar. Eigendur eru bræðurnir Gunnar Páll og Sumarliði Rúnarssynir, synir Rúnars Marvins- sonar matreiðslulistamanns á Tjörn- inni. Vínbarinn er hlýlegur og vinaleg- ur staður á frábærum stað. Hægt er að fá ágætt úrval góðra vína í glasavís. A matseðli Vínbarsins eru smáréttir sem eiga vel með glasi af víni, staðurinn getur tekið á móti 90 gestum og er hann því hæfilega stór, opið er virka daga frá klukkan 16:00 til 1:00 og um helgar til klukkan 3:00.1 stuttu spjalli við þá bræður kemur meðal annars fram að gestirnir eru flestir frá aldrin- um 30 ára og upp úr. Rauðvínin njóta meiri vinsælda en þau hvítu. Flest áhugafólk byijar gjarnan á því að drekka hvítvín er fer svo yfir í rauðvín. Vínin frá nýja heiminum njóta mikilla vinsælda, eink- um þá vínin frá Astralíu. Vín sem gerð eru úr Shiraz þrúgunni eru gífurlega vinsæl um þessar mundir. Shiraz eða Syrah vínin eru ilm- og bragðmikil, af þeim er berja- og piparbragð og stundum vottar aðeins iýrir súkkulaðibragði. Gunnar Páll nefn- ir tvö vín sem eru í miklum metum um þessar mundir, bæði eru þessi vín allsérstök og koma frá Astralíu, nánar tiltekið frá iýrir- tækinu Rosemount. Fyrra vínið heitir GSM og er það pressað úr þremur þrúgutegundum, Grenache, Syrah og Mourvedre. Þetta er kröftugt vín, bragðmikið en þó ljúft og þægilegt, þetta sérstaka vín kemur frá einu besta vínræktarhéraðinu í Astralíu, Mekka vínáhugafólks er Vínbúðin Heiðrún, Stuðlahálsi 2. A sérlist- anum ergott og forvitnilegt úrval vína. Hægt er að panta sérlistavín í öðrum vínbúðum en skemmtilegast erpó að heimsækja Heiðrúnu og skoða vínin. Efitir Sigmar B. Hauksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.