Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 101
FYRIRTÆKIN fl NETINU
Veraldarvefurinn er frábær auðlind fyrir
hugmyndasnauða heimiliskokka, atvinnumenn og
áhugamenn um matargerð því að auðvelt er að
leika sér löngum stundum við að skoða matarfróð-
leik á Netinu eða leita að einu réttu uppskriftinni
fyrir kvöldið. Hægt er að finna girnilega umfiöllun
hjá bæði einstaklingum ogfyrirtækjum en nokkrir
vefir bera óneitanlega höfuð og herðaryfir aðra, að
peim síðarnefndu pó algjörlega ólöstuðum.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Kristín Bjarnadóttir er ritstjóri Uppskrifta.is. Hún segir að
daglega komi yfir 500 gestir inn á vefinn, langflestir milli
klukkan þrjú og fjögur á daginn þegar vinnu fer að ljúka og
tími til að huga að matarinnkaupum. Þetta fólk stoppar að
meðaltali 20-30 mínútur inni á vefnum og vefrannsókna-
skýrslur sýna að það er greinilega að leita að matarupp-
skriftum. Uppskriftaklúbbur vefsins hefur um 7.000 félaga og
geri aðrir betur! Þetta fólk fær reglulega sendar tillögur að
helgarmatseðlinum ásamt vínupplýsingum undir heitinu
Víngæðingurinn en unnið er að því að gera vínumíjöllunina
öllum aðgengilega á vefnum. Ekki má heldur gleyma tilboð-
unum en þegar þetta er skrifað er t.d. boðið upp á bækur
Jamie Olivers á kostakjörum.
Annar kröftugur vefur er Matarlist.is þar sem aðgengilegar
eru upplýsingar um framandi matargerðarlist og uppskriftir
frá Italíu, Mexíkó, Taílandi, Indlandi, Kína og jafnvel Banda-
Upþskriftir.is er með uppskriftir, leitarvél og
alls kyns fróðleik, t.d. um krydd, mál og vog,
auk þess sem hægt er að fletta upp í matar-
orðabókinni og svo mætti lengi telja.
Matarlist.is er með uppskriftir frá Mexíkó,
Indlandi, Taílandi og fleiri fjarlœgum lönd-
um.
...4.4.a.,A„
.=* I 4 #• ■» 3 A.
UppskríftaWWWefurinn
Uppskriftavefurinn er á www.eldhus.is, lýð-
rœðislegur og hressilegur vefur.
Frábærasta uppfinning síðari ára er uppskriftabrunnurinn á
Netinu sem hægt er að hella sér út í þegar áhuginn rekur
eða neyðin býður. Nokkra öfluga uppskriftavefi má finna
og ber fýrstan að nefna Uppskriftir.is, sem Sláturfélag Suður-
lands stendur fyrir, því að þar kemur ábyggilega enginn að
tómum kofanum. Vefurinn er rekinn með það metnaðarfulla
markmið að vera stærsti og öflugasti uppskriftavefur landsins
og hvort sem það hefur tekist eða ekki þá er ljóst að vefurinn
hefur marga kosti fram yfir aðra. Uppskriftirnar eru um 300
talsins og fer þeim ört fjölgandi því að í hverjum mánuði bæt-
ast við nokkrar nýjar uppskriftir. Boðið er upp á öfluga leitarvél
svo að auðvelt og þægilegt er að leita að uppskriftum, t.d. eftir
hráefni eða eðli rétta, auk þess sem hægt er að skoða upplýs-
ingar um framandlegt eða kunnuglegt krydd, mál og vog, fletta
upp í matarorðabókinni, skoða upplýsingar um veitingastaði
og matreiðslumenn og svo mætti lengi telja. Notendum er
gefinn kostur á að koma með umsögn, gefa uppskriftunum
stjörnur og síðast en ekki síst gefur vefurinn þeim kost á því að
búa til sína eigin matreiðslubók.
ríkjunum ásamt leiðbeiningum. Það er heildverslunin Karl K.
Karlsson sem rekur þennan vef ásamt vefnum vin.is, og er
miðað við vörur sem fyrirtækið hefur á boðstólum. Hægt er
að leita í uppskriftabankanum út frá tegund og innihaldi,
ganga í klúbb, fara á námskeið, kaupa gjafir og lesa fréttir sem
tengjast efni vefsins. Agætis vefur fyrir þá sem eru á höttunum
eftir einhverju öðruvísi en samt einföldu og þægilegu.
Þriðji vefurinn, sem er kannski sá einfaldasti og hressi-
legasti, er Uppskriftawwwefurinn.is á www.eldhus.is. Upp-
skriftawwwefurinn.is er elsti íslenski matarvefurinn eftir því
sem best er vitað, fór í loftið 1995 á vegum tveggja háskólastúd-
enta, og hann er óvenjulegur að því leytinu til að það eru
notendurnir sjálfir sem bera hann uppi. Vefurinn byggir ein-
göngu á framlagi netveija, bæði í máli og myndum, og oft eru
uppskriftirnar sniðugar og skemmtilegar, textinn hressilegur
og aðferðafræðin einföld en óneitanlega getur það verið galli í
alvöruþrunginni leit að hinni einu sönnu mataruppskrift hve
happa og glappa uppskriftaúrvalið er. Það fer jú bara eftir áhuga
notendanna hvað þeir hafa sent inn.SD
VIÐSKIPTI ■ TÖLVUR ■ FERÐALÖG ■ VÍN - WWW.HEIMUR.IS
101