Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 45
YFIRHEYRSLA ÁSMUNDUR STEFÁNSSON
vísi ferill til að leiða mál til lykta. Þetta getur orðið miklu erf-
iðara. Viðfangsefni verkalýðshreyfingar og fyrirtækis eru
gerólík. I grundvallaratriðum snýst vinnan þó um það að setja
sér markmið og skipuleggja þá vinnu sem þarf til að mark-
miðið náist. Það kallar á að maður geri ýmsa hluti sjálfur og
nái fólki saman um að gera það sem þarf að gera. Að því leyt-
inu er meginstofninn í verkefnunum sá sami þó að viðfangs-
efnin séu ólík.“
- Islandsbanki hefur sýnt frábæra afkomu síðustu ár.
Er engin eftírsjá í því að hafa yfirgefið þetta fyrirtæki?
,Jú. Islandsbanki er að mínu mati best rekna fyrirtækið á
landinu. íslandsbanki hefur sterkt innra skipulag og hefur
tekist vel að stilla saman aðhaldssemi í kostnaði og traustri
markaðssetningu á sinni þjónustu. Eg starfaði þarna í rúm-
lega átta ár og lærði mikið á þeim tíma. Eg kom þarna að
vissu leyti inn í annan heim þó að ég þekkti töluvert til
bankamála. Eg er menntaður hagfræðingur svo að ég var
líka að nýta mínar tækniforsendur. Framkvæmdastjórahóp-
urinn innan íslandsbanka er sterkur og millistjórnendur í
bankanum eru mjög öflugir þannig að í heildina er Islands-
banki sterkt, traust og framsækið fyrirtæki. I sjálfu sér
fannst mér áhugavert að færa mig til og takast á við önnur
verkefni. Hér er fámennt fyrirtæki með þrengra verksvið og
hér er allt öðruvísi ákvarðanataka en í Islandsbanka. Mér
fannst áhugavert að söðla um og prófa annað. En auðvitað
gerist það með eftirsjá. Þegar maður er ánægður einhvers
staðar og líður þar vel þá fer maður ekki út án þess að sjá
pínulítið eftir því.“
- EFA og Þróunarfélag Islands hafa sameinast í Fram-
tak íjár fe sti ngaban ka. Er áherslan að færast yfir í
umbreytingastefnu?
„Nafnabreytingunni er ætlað að endurspegla þær áherslur
sem ný stjórn leggur í sinni stefnumótun. Markmiðið er að
leggja meiri áherslu á umbreytingaverkefni, koma að
félögum þar sem eigendaskipti eiga sér stað eða félög þurfa
aukið fé vegna útrásar og innri endurskipulagningar. Þau
verkefni eru mýmörg. Við höfum líka sett okkur það
markmið að færa okkur til í vaxtarverkefnum, leggja minni
áherslu á sprotaverkefni og koma frekar inn í fyrirtæki sem
eru komin lengra á þroskabrautinni, þar sem farið er að
styttast í tekjur og hagnað. Margar eignir hafa líka safnast í
eignasafn þessara tveggja félaga. Töluverðu máli skiptir að
fækka þeim þannig að við getum einbeitt okkur betur að
þeim sem eftir eru.“
- Ætlið þið að halda útsölu?
„Nei. Við getum alveg eins haft þessi félög á eignaskrá eins
og að halda útsölu. En við munum leitast við að vinna úr eign-
unum þannig að við getum fengið gott verð fyrir þær.“
- Þetta minnir svolítið á t.d. Gildingu. Eruð þið ekkert
hræddir við að í þessu árferði núna geti þetta reynst
svolítið erfitt?
„Starf af þessu tagi er alltaf erfitt. í góðæri festa menn sig oft í
einhverju sem er ekki gott þegar upp er staðið. Færa má rök
fyrir því að rétti tíminn til að íjárfesta í fyrirtækjum sé þegar ró
er komin yfir hlutina og ljóminn farinn að dofna. I svona fyrir-
tæki skiptir máli að greina vel hvaða tækifæri og hvaða hættur
eru í hverri ijárfestingu þannig að menn fari inn í fyrirtækin á
réttum forsendum og leggi helst niður fyrir sér hvernig þeir
ætla að fara út aftur. Málið snýst síðan um að fylgja verkefninu
eftir þannig að góðar áætlanir verði góð framkvæmd. Miklu
skiptir að við höfum meðal okkar starfsmanna menn með
reynslu úr atvinnulífinu sem geta orðið liðtækir í þeim fyrir-
tækjum sem við komum í. Við getum komið sem óháðir aðilar
að fyrirtækjunum og haft þær skoðanir sem fyrirtækjunum
eru nauðsynlegar til að þau hafi af þessu gagn. Auðvitað eru
ýmis fyrirtæki sem hafa farið illa. Fyrir tveimur til þremur
árum var allt fullt af peningum í landinu. Efnaðir einstaklingar,
sem höfðu verið með sitt í ijölskyldufyrirtækjum, voru farnir
að losa um þá. Það kom fram sterk ósk um að dreifa eigninni
og fara inn á önnur svið. A sama tíma ríkti bjartsýni um fram-
vindu óskráðra félaga og því var auðvelt að safna liði til ijárfest-
inga. Síðan hefúr tvennt gerst. Mörg af þessum verkefnum
hafa súrnað, þau hafa ekki skilað því sem vænst var og mörg
þeirra hafa dottið upp fyrir. A sama tíma hefur gengið á fé ijár-
festa og þeir hafa orðið stórum aðhaldssamari en áður. Viljinn
til að taka áhættu er ekki til staðar á sama hátt og fyrir tveimur
til þremur árum. Núna vilja menn sjá árangur. Þessi hringferð
eða velta sem markaðurinn hefur farið í gegnum á síðustu
árum þýðir að núna er tækifæri til að nýta ijármunina til gagns
og uppbyggingar með því að ástunda fagleg vinnubrögð, vera
með öfluga greiningu á möguleikum og hættum í hveiju ein-
stöku verkefni og með því að fylgja verkefnunum eftir skipu-
lega og faglega."
- Hvenær fer Kaupás á markað?
„Eg treysti mér ekki til að segja til um það. Þegar Jjárfestar
keyptu ijölskylduna og KÁ út úr Kaupási árið 2000 höfðu þeir
trú á að það væri auðvelt að skrá fyrirtækið á markað. Síðan
hefur tvennt gerst. í fyrsta lagi hefur ýmislegt í rekstrinum
reynst erfiðara en talið var. I öðru lagi hefur markaðurinn gjör-
breyst þannig að engin forsenda er til að skrá fyrirtæki af þess-
ari stærðargráðu. Það þarf meiri umsvif og lengri sögu. Við
erum að vinna úr því verkefni sem Kaupás er. Fyrstu misserin
eftír kaupin var viðfangsefnið að finna hvernig við komum
félaginu á markað og hvernig við seljum aftur okkar hlut.
Síðasta hálft annað árið höfum við unnið að endurskipulagn-
ingu félagsins. Miklar breytingar hafa orðið í sijórnendahópi
þess. Við höfum unnið mjög eindregið og einarðlega að innri
uppbyggingu. Eg vonast til þess að við förum að sjá merki þess
í afkomu félagsins. Við þurfum að sýna áþreifanlegan árangur
áður en við getum farið að ræða um verðlagningu." SH
45