Frjáls verslun - 01.02.2003, Side 52
SÉRFRÆÐINGAR SPfl í SPILIN
Spumingin til Atia Freys Sveinssonar, markaðsstjóra Islensku auglýsingastofunnar, er þessi:
Islenski markaðsdagurinn var haldinn hátíðlegur nýlega. Við spyrjum pví:
Hvaða fimm þættir skipta höfuðmáli í samvinnu auglýsanda og auglýsinga-
stofu til að hámarksárangur náist við gerð auglýsingar?
Tökum ákuarðanir með höfðinu,
innleiðum þær með hjartanu
fltli Freyr Sveinsson, mark-
aðsstjóri íslensku auglýs-
ingastofunnar, nefnir þá
fimm þætti sem skipta
höfuðmáli í samvinnu
auglýsanda og auglýs-
ingastofu.
Traust - heiðarleg ráð-
gjöf - markmiðasetning -
skapandi hugsun og
réttar birtingar eru að
mínu mati þeir fimm
þættir sem skipta
mestu máli til þess að
hámarksárangur náist.
Traust - heiðarleg ráðgjöf - markmiða-
setning - skapandi hugsun og réttar
birtingar eru að mínu mati þeir fimm
þættir sem skipta mestu máli til þess að
hámarksárangur náist.
Traustið Traustið er forsenda þess að
menn geti unnið saman og það verður að
ganga í báðar áttir, þ.e. auglýsingastofan
verður að treysta viðskiptavininum og
öfugt. Það er mikilvægt að muna að við
erum að tala um samstarf og samvinnu sem
miðar að því að ná þeim markmiðum sem
viðskiptavinurinn setur sér, oftast í sam-
vinnu við auglýsingastofuna. Við á íslensku
auglýsingastofunni segjum gjarnan að það
sé mikill munur á því að vinna íýrir fyrir-
tæki og að vinna með þeim. Við viljum
vinna með þeim.
Heiðarleg ráðgjöf Ég held að auglýs
ingastofur eigi að horfa á sig sem ráðgef-
andi aðila, hvort heldur sem er á sviði
hönnunar, birtinga eða markaðsstarfsins
almennt. Því er mikilvægt að þær hafi vel
menntað fólk í vinnu sem hefur eitthvað
fram að færa á þessum sviðum og að það
hafi aðeins eitt markmið að leiðarljósi í öllu
sínu starfi: Hvað er rétt fýrir viðskiptavin-
inn? Ráðgefandi hluti stofunnar felst í því
að skilja tvær hliðar vörunnar; þá hlið sem
snýr að neytandum og þá sem snýr að selj-
andanum.
Markmið Þetta leiðir til næsta þáttar sem
er markmiðasetningin. Það er gríðarlega
mikilvægt að allir sem koma að auglýsinga-
gerðinni í víðasta skilningi þess orðs geri
sér grein fýrir því að hverju er stefnt.
Aðeins þannig er hægt að gera markvissar
auglýsingar. Það er hlutverk viðskiptavinar-
ins og auglýsingastofunnar í sameiningu að
setja þessi markmið og að fýlgjast með því
hvernig þau nást.
Skapandi hugsun Skapandi hugsun er
kjarninn í öllu starfi auglýsingastofunnar
lýrir viðskiptavini sína og þar af leiðandi í
samvinnunni. Það er hlutverk þeirra sem
vinna á auglýsingastofu að sjá nýjar hliðar á
því sem viðskiptavinurinn vill standa fýrir
og koma því til skila þannig að breytt við-
horf auki virði vöru viðskiptavinarins.
Réttar birtingar Réttar birtingar á skila-
boðum er síðan fimmti þátturinn sem mig
langar að nefna. Birtingar hafa mikið verið
í umræðunni síðustu misseri en mér hefur
stundum fundist eins og það vanti í rauninni
mikilvægasta punktinn inn í þá umræðu.
Það sem er raunverulega dýrt í birtingum
skilaboða er ef þau birtast ekki á réttum
stað og á réttum tíma. Til þess að tryggja að
verið sé að nýta þá miklu fjárfestingu sem
oft á tíðum liggur í birtingum skilaboða hjá
fyrirtækjum er afar mikilvægt að auglýs-
ingastofurnar og/eða þau iýrirtæki sem sjá
um þessi mál hafi yfir að ráða nauðsyn-
legum tólum og tækjum, nýjustu rannsókn-
um og hæfileikaríku fólki sem veitir við-
skiptavinum óháða og heiðarlega ráðgjöf.
Ég held að kannski megi lýsa kjarn-
anum í því að ná árangri með auglýsingum
með eftirfarandi orðum: Tökum ákvarð-
anir með höfðinu, innleiðum þær með
hjartanu." H5
52