Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 63
FRUlVlKUðÐLAR VIÐSKIPTAÁÆTLUN
grundvallaratriðið að vera óspar á að leita sér upplýsinga, fá
líka slæmu og neikvæðu upplýsingarnar, og tala við sem flesfa
í svipuðum rekstri án þess að upplýsa þá nákvæmlega um það
sem maður er að fara að gera,“ segja hjónin Olafur Árnason og
Guðrún Möller, eigendur Thjune Maternity, tískuverslunar
með fatnað iýrir þungaðar konur.
Gyðja barnsburðarins Ólafur vann að verkefni í Montreal í
Kanada haustið 2000 þegar Guðrún kom í heimsókn til hans.
Þau áttu von á sínu fjórða barni og fóru og „straujuðu kredit-
kortið", eins og þau orða það, í verslunum iýrir þungaðar konur.
Það hafði lengi blundað í þeim að heija eigin atvinnurekstur.
Hugmynd kviknaði um að stofna verslun með tískufatnað iýrir
þungaðar konur. Guðrún sá þarna tækifæri og Ólafur lagðist
fljótlega á sveif með henni því að þau sáu að þarna var gat á
markaðnum. Þau höfðu samband við stjórnendur kanadísku
keðjunnar Thyme Maternity og svo vel vildi til að þeir höfðu
einmitt skömmu áður verið á ferðalagi um Norðurlöndin til að
kanna markaðinn þar. Fremur sjaldgæft er að íslendingar fái
umþoð iýrir öll Norðurlöndin. Kanadísku stjórnendunum leist
hinsvegar ágætlega á það, jafn nýjungagjarnir og íslendingar
eru, og voru reiðubúnir að selja þeim rekstrarleyfi iýrir öll
Norðurlöndin. Þau stofiiuðu iýrirtækið í ársbyrjun 2001 og
völdu nafnið Lucina ehf., sem er nafiiið á gyðju barnsburðarins.
Skömmu síðar eignuðust þau sitt fjórða barn.
Ólafur og Guðrún gerðu sína viðskiptaáætlun sjáif. Við gerð
hennar skoðuðu þau reksturinn í Kanada en þar eru reknar 62
Thyme maternity verslanir. I Kanada búa 30 milljónir manna. A
Norðurlöndum eru íbúarnir 25 miiljónir. Þau skoðuðu ijölda
fæðinga í Kanada og hveiju Norðurlandanna iýrir sig, reiknuðu
allan iýrirsjáanlegan kostnað við að koma verslunum af stað og
fá inn vörur og komust að þeirri niðurstöðu að það væri mark-
aður fýrir keðju af þessu tagi og hagnaðarmöguleikar vænlegir.
Þau öfluðu allra gagna og unnu úr þeim sjálf en nutu góðs af
þátttöku Guðrúnar í Auðarverkefninu en iýrirtæki þeirra fékk
einmitt sérstaka viðurkenningu í því. „Eg hugsa að það sé
erfiðast að verða ekki of litaður af viðskiptahugmyndinni sem
maður fær, maður þarf að geta horft á hana gagnrýnum augum.
Það er gott að fá einhvern annan til að fara yfir hana og koma
með athugasemdir. I gegnum Auðarverkefnið fengum við
Deloitte og Touche til þess að gagnrýna hana með það iýrir
augum að þetta komi sem best út íýrir alla. Við höfum síðan
unnið áfram með hana og markaðssett hana iýrir ijárfestum,"
segja þau.
20 verslanir fyrir 2008 Við áætlun á markaðshlutdeild fengu
þau upplýsingar um fatakaup kanadískra kvenna á meðgöngu-
tímanum. I Kanada kemur hver kona þrisvar sinnum í Thyme
Maternity-verslun, fýrst þegar hún er nýbúin að fá fréttirnar af
þungun sinni, næst þegar hún er farin að þykkna undir belti og
svo aftur í kringum fæð-
inguna. Hún eyðir að með-
altali 25 þúsund krónum í
fatnað við hverja þungun.
Þar sem það tekur nýtt
Að huerju á að huga?
- Kynntu þér vel hvernig á að gera viðskiptaáætlun áður en þú
hefst handa eða fáðu fagmann til að vinna verkið.
- Kannaðu málið mjög vel hjá öðrum í geiranum.
- Vertu óhrædd að afla gagna, ekkert síður þeirra sem geta haft
slæm tíðindi í för með sér en þeirra sem gefa góða og jákvæða
mynd. Það skiptir miklu máli að geta horfst í augu við dæmið í
heild sinni.
- Fáðu óháðan aðila til að fara yfir uiðskiptaáætlunina og koma
með gagnrýni.
- Reyndu að sækja námskeið um gerð uiðskiptaáætlana.
- Kynntu þér fjármögnun og möguleika á fjármögnun hugmyndar
þinnar.
- Skoðaðu samkeppnina.
- Gerðu ráð fyrir allauega 1-2 árum frá því að þú færð hugmynd-
ina og þar til hún er orðin að veruleika.
- Hlustaðu á skoðanir annarra en láttu ekki telja úr þér kjark ef
þú reiknar út að verkefnið geti gengið upp.
fyrirtæki um þijú ár að vinna sig upp í fulla veltu ákváðu þau að
ganga út frá því að íslenskar konur eyddu um 13 þúsund
krónum að meðaltali. Síðan var sett markmið með markaðshlut-
deild og er hún breytileg milli landa en stefnt er að þvi að veltan
verði komin í fullt jafnvægi eftir þijú ár eða svo.
Takmark Thyme Maternity er sett á 20 verslanir á öllum
Norðurlöndunum árið 2008. Fyrsta verslunin var opnuð 13.
september 2001 í Hlíðarsmára í Kópavogi. Þau segja að 40 pró-
senta aukning hafi orðið í janúar á þessu ári miðað við janúar í
fyrra og 45 prósenta aukning hafi orðið í febrúar miðað við
febrúar í fyrra. Horfurnar eru þvi frábærar. Önnur verslunin hóf
starfsemi innan Debenhams í miðborg Stokkhólms í haust og
hefur henni verið vel tekið en veltuþróunin hefur verið svipuð
úti í Svíþjóð og hér. „Við höfum fengið hlýjar og góðar móttökur
í Svíþjóð," segja þau. Kannanir þar sýna að átta til níu af hveijum
tíu konum kaupa sér klæðnað á meðgöngunni. Það er því með
bjartsýnum huga sem þau opna þriðju verslunina í Solna
Centrum í mal í vor.
Framtíðarskipulag Thyme Maternity er skýrt: Fyrir utan
það að reka eina verslun á íslandi og tvær í Stokkhólmi hyggj-
ast þau opna tvær verslanir til viðbótar í Svíþjóð, á þessu ári, og
að minnsta kosti eina í Kaupmannahöfn á næsta ári. Stefnan er
að vera komin með firnm verslanir í Danmörku í árslok 2005 og
fyrir árið 2008 er ætlunin að vera með fimm í Noregi, fimm í
Finnlandi, skoða svo Færeyjar ef ailt gengur að óskum. „Versl-
anirnar bjóða upp á fatnað fyrir breiðan hóp þungaðra kvenna á
milliverði og því ættu möguleik-
arnir að reynast góðir. Við
leggjum áherslu á góða þjón-
ustu og teljum okkur höfða til
allra,“ segir Guðrún að lokum.Iíl
Eigendur
Guðrún Möller og Ólafur Árnason ..........94%
Steindór flrnason og fjölskylda í Vestmannaeyjum . 6%
63