Frjáls verslun - 01.02.2003, Blaðsíða 75
REKSTRARLEIGA
fólgin í því að endurkaupaverðið hafi fylgt markaðsþróun
notaðra bíla á rekstrarleigutímabilinu.“
Gengissveiflur Rekstrarleigusamningar eru mjög oft tengdir
að hluta eða alveg erlendu gengi þannig að gengisþróunin
hefur áhrif á arðsemi rekstrarleigusamninga. Þróun söluverðs
notaðra bfla hefur minni áhrif á arðsemina vegna þess að oftast
fylgir verð nýrra bíla ekki gengissveiflum nákvæmlega og sölu-
verð notaðra bíla reiknast frá verði nýrra bfla.
„Til þess að rekstrarleiga geti verið hluti af rekstri bílaum-
boða í framtíðinni þarf efnahagslegur stöðugleiki að ríkja,“
segir Júlíus Vífill. „Bflainnflutningur er sveiflukenndur og það
getur reynst erfitt að taka við miklum fyölda notaðra bfla úr
rekstrarleigusamningum þegar greinin er að fara inn í sam-
dráttarskeið. Þess vegna munu bílainnflutningsfyrirtæki halda
aftur af sér upp að ákveðnu marki. Fyrir þau er rekstrarleigu-
samningur áhættumeiri en að selja bíl með venjulegum hætti.
En ég hef tekið eftir því að forsjálir forsvarsmenn stofnana sjá
auk annars þann hag í þessu að rekstrarleigutími rennur út
eftír tvö ár að jafnaði. SH
Áskrifandi að bíl
/
A að leigja bíl eba kaupa? Þab vefst
fyrir mörgum en kostir við rekstrar-
leigu eru margir umfram það að
kaupa bíl.
Jón Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri B&L.
að þykir sjálfsagt mál að taka bfl á leigu
í útlöndum. Ferðast um á honum og
nota hann sem sinn eigin í nokkra daga
eða vikur, jafnvel mánuði ef því er að skipta.
Það þýðir að viðkomandi einstaklingur veit
upp á hár hvað hann kemur til með að eyða í
bílarekstur og ekkert kemur á óvart. Allur
kostnaður er uppi á borðinu.
Hér á landi hefur bílaleiga ffarn til þessa
mest verið fyrir ferðamenn og svo þá sem af
einhverjum ástæðum hafa ekki getað notað
eigin bíl um tíma. Fyrir nokkru breyttist
landslagið skyndilega þegar bílaleigur tóku
sig til og buðu Islendingum bíla í langtíma-
leigu yfir veturinn, daufari tíma ársins, til að nýta bílana betur.
Bifreiðaumboðin buðu rekstrarleigu á bifreiðum, fyrst aðal-
lega til fyrirtækja en nú til almennings einnig.
Hvernig bíl þarftu? „Það er auðvitað ekkert öðruvísi að leigja
bfl hér heima en í útlöndum," segir Jón Snorri Snorrason,
framkvæmdastjóri B&L. „Menn eru í auknum mæli farnir að
hugsa um kostnað vegna bíla sem neyslu en ekki fjárfestingu
og þá kemur upp hugsunin um það hversu miklu viðkomandi
vill eða getur eytt í kostnað vegna bíls. Inn í það kemur líka
hugsunin um það hvernig bíl viðkomandi þarf hveiju sinni,
hvort um er að ræða stóra fjölskyldu, þörf fyrir að aka um ljöll
og firnindi eða hvort þörfin einskorðast við að skreppa milli
húsa í borginni og vera einn í bfl að mestu. Þegar fólk er farið
að hugsa svona lítur dæmið allt öðruvísi út.“
Kostir Við rekstrarleigu Jón Snorri segir ijölmarga kosti
við rekstrarleigu umfram að kaupa bíl. Ekki þurfi að sinna
tímafreku viðhaldi, engin stór ijárhæð er bundin í bílnum og
vilji viðkomandi skipta um bíl að loknum leigutíma er það
lítið mál. „Það er auðvitað einnig kostur fyrir bílaumboðið
eða eiganda bflsins að hafa þetta kerfi þar sem það auðveldar
mjög alla skipulagningu. Þannig getur umboðið vitað með
löngum fyrirvara að einn viðskiptavinur vill alltaf endurnýja
í nýjan bíl og kemur á tveggja ára fresti til að skipta á meðan
annar vill fremur eldri bíl og ódýrari og tekur hugsanlega við
af hinum. Viðhald og þjónusta bílsins er fyrsta flokks þar
sem umboðið sér um hann sjálft og sá sem er með bílinn á
leigu finnur ekkert fyrir viðgerðum eða viðhaldi. Hann þarf
að vísu að gæta þess að fara vel með bílinn en það er sjálfgert
og nákvæmlega eins og fólk gerir við eigin bíla.“ HIl
75