Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 85

Frjáls verslun - 01.09.2003, Side 85
FYRIRTÆKIN Á NETINU Markaðsselning erlendis - á Netinu! Sumir telja að flott útlit veflarins sé fyrir öllu en það er mildll misskilningur. Vefur- inn þarf að vera hreinn og einfaldur í hönnun og við markaðssetningu erlendis þarf hann að vera vel aðgengilegur fyrir notendur og, ekki síður, fyrir leitarvélarnar! Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Hreinn og einfaldur vefur - það er grundvallaratriðið í útliti vefla í dag. Notkun nýjustu taekni í vefhönnun getur þvælst fyrir og unnið gegn því að nógu góður árangur náist ef markaðssetja skal erlendis á Netinu. Allt er hægt að markaðssetja í gegnum Netið þó að vissulega sé kannski auðveldara að markaðssetja sumt fremur en annað. Lykilatriðið er að fyrir markaðssetninguna hafi vefurinn verið gerður aðgengilegur fyrir bæði notendur og ekki síður fyrir leitarvélarnar! Það þurfa að vera sem mestir möguleikar á því að leitarvélarnar finni vefinn og komi honum á framfæri við notandann. Þannig næst bestur árangur. „Við þurfum að taka mið af leitarvélunum í gegnum allt vefhönnunarferlið, hvort sem það er í nýrri hönnun eða endurhönnun. Vefurinn þarf að vera hreinn og einfaldur í útliti og notkun en vel hannaður vefur snýst um annað og meira en bara fagurfræðilegt útlit. Það eru ijöldamörg íslensk fyrirtæki sem eru að sækja á erlenda markaði og því miður er alltof algengt að vefir þessara fyrirtækja finnist ekki á Netinu. Astæðan er sú að ekki var tekið mið af því hvernig leitarvélar starfa við gerð vefjarins. Það getur orðið fyrirtækjum dýrkeypt að undanskilja þennan þátt við hönnunina en það er mun kostnaðarsamara fyrir fyrirtækin þegar þau verða að stilla vefinn eftir á með tilliti til þess að ná góðum árangri á leitarvélum," segir Sjöfn Agústsdóttir, vefstjóri og ráðgjafi um markaðsmál á Netinu. Sjöfn þekkir markaðssetningu erlendis á Netinu af eigin raun eftir að hafa starfað við það í ijölmörg ár. Jafnframt er hún og hefur verið vefstjóri hjá Mönnum og músum undanfarin sex ár. Hvað skiptir mestu máli? Langstærsti hluti nýrra gesta fer í gegnum leitarvélarnar. Ymislegt hefur áhrif til góðs við markaðssetningu á Netinu og allt miðast það við að hámarka árangurinn af þessum vélum. Hér verður fátt eitt talið: Fyrir utan það grundvallaratriði að taka tillit til leitarvélanna við hönnun veijarins frá upphafi er mikilvægt að gæta þess að nota ekki tækni sem gæti dregið úr líkum á því að leitarvél finni síðurnar. Einnig þarf að velja lykilorð fyrir vefinn og hafa þá í huga hvaða lykilorð sé líklegt að notandi úti í heimi slái inn og taka ákvörðun um undir hvaða leitarorðum fyrirtækið Á vef Manna og músa er mikið um endurtekningar á DNS, sem er eitt aðal leitarorðið hjá fyrirtækinu. vill láta finna síðurnar sínar. Við textaskrif á vefinn þarf líka að hafa leitarvélina í huga og gæta þess að hafa hæfilegar endur- tekningar á leitarorðum. Þá skiptir máli að leitarvélarnar hafi gott aðgengi að sem flestum síðum frá heimasíðunni, t.d. með því að birta veftré („site map“). Einnig er mikilvægt að kynna sér þær reglur sem leitarvélarnar hafa og gæta þess að brjóta þær ekki svo að vefnum verði ekki hent út af leitarvélinni. Þetta er m.a. mikilvægt: • Taka tillit til leitarvélanna við hönnun vefjarins frá upp- hafi. • Nota ekki tækni sem getur dregið úr líkum á því að leitar- vélar finni síðurnar á vefnum. • Velja góð leitarorð eða m.ö.o. lykilorð og endurtaka þau hæfilega oft á síðunum. • Birta tengil á veftré frá forsíðu svo að leitarvélar hafi aðgengi þaðan að mikilvægustu undirsíðum. • Nota lykilorð í síðutitlum. • Nota textatengla fremur en myndatengla þar sem því verður við komið. • Gæta þess að brjóta ekki reglur leitarvélanna. • Fylgjast reglulega með árangri veijarins í leitarvélum og gera úrbætur ef þörf er á. HH VIÐSKIPTI ■ TÖLVUR ■ FERÐALÖG ■ VÍN - WWW.HEIMUR.IS 85

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.