Frjáls verslun - 01.09.2004, Side 42
Markaðurinn trúir á þetta Kögun kaupir
Opin Kerfi Group hf. fyrir um það bil 8,1
milljarð króna. Fyrir er greitt í tveimur jafn-
stórum hlutum, það er hluthafar fá annars
vegar hluti í Kögun og hinn helminginn
greiddan með peningum. „Við fórum á
skuldabréfamarkaðinn til að ná í það fjár-
magn sem til þurfti. Utboðið gekk vel og við
erum markaðnum þakklátir fyrir að hafa trú
á okkur. Eg er heldur í engum vafa um að
við fáum grænt ljós á hluthafafundi, sem er
framundan, til þess að afla heimildar til að auka hlutafé."
Ætlunin er að auka hlutafé í Kögun um alls 60 milljónir
króna, eða í samtals 192 millj. króna og gengið er 42,8 á hvem
hlut „Lögmálinu samkvæmt þýðir þetta að eignaprósenta okkar
sem fyrir emm i félaginu mun þynnast, en á móti kemur að við
eignumst hlut í stærra félagi," segir Gunnlaugur og kimir.
Hann bendir á að Kögun hafi verið að stækka mjög ört
síðustu misseri og útboð á nýju hlutafé samfara lántöku
sé sú leið sem Kögun hafi talið best henta við núverandi
aðstæður. Hlutafé Kögunar var 90 millj. kr. um síðustu
áramót þegar Kögun keypti Landsteina - Streng, sem þá
þýddi að auka þurfti hlutaféð um 30 millj. kr. Kögun átti þá
ónýtta heimild til að auka hlutafé og vegna fyrstu kaupanna
á Opnum Kerfum Group hf. í ágúst var tólf milljónum bætt
við. Þegar samstaðan öll er nú keypt verður óskað heimildar
til að auka um 60 millj. kr. til viðbótar. Samanlagt eru þetta
192 millj. kr. og miðað við núverandi gengi er verðmæti
Kögunar 8,2 milljarðar kr.
Móðurfélag margra smærri Kögun og Opin Kerfi Group
hf. eru um margt eðlislík fyrirtæki. Á báðum bæjum hefur
alltaf mikið verið lagt uppúr aga og markvissum áætlunum,
sem er fylgt vel eftir. Að þessu leyti er menning fyrirtækj-
anna lík. Bæði fyrirtækin eru einnig sprottin upp úr svip-
uðum jarðvegi og voru stofnuð á þeim tíma þegar tölvu- og
hugbúnaðarvæðing hér á landi var að taka flugið.
Kögun hf. var stofnuð árið 1988, en upphaflega var fyrir-
tækið sett á laggir til að smíða hugbúnað fyrir íslenska loft-
varnarkerfið. Fyrstu árin var Kögun með starfsemi vestur
í Kalifomíu og verkefni
fyrir Bandaríkjaher vom
það eina sem fyrirtækið
sinnti. Starfsemin fluttist
heim árið 1995 og vom
verkefni á Keflavíkur-
flugvelli þá helsta tekju-
lindin. Fyrirtækið hefur
breyst mikið frá þessum
tíma, vaxið að umfangi
og tekist á hendur ný
verkefni þannig að í dag er vinnan fyrir Bandaríkjaher
tiltölulega lítill hluti af heildarveltu. Sú vinna hefur er þó
fyrirtækinu afar þýðingarmikil að mati Gunnlaugs: hafi verið
forsenda fyrir verkefnaöflun erlendis.
Gunnlaugur leggur áherslu á að Kögun sé nú að stofni til
móðurfélag margra hugbúnaðarfyrirtækja. Þetta em VKS, Ax
hugbúnaðarhús, Hugur, Span og Landsteinar - Strengur. Hið
síðastnefnda er nú á heimsvísu orðinn stærsti framleiðandi
verslunarlausna í Microsoftumhverfinu, það er hugbúnaðar-
kerfi fyrir búðakassa með tengingu við lager, innkaup og
bókhald. „I dag gildir að bjóða viðskiptavinum heildstæðar
lausnir og frekari sókn erlendis verður byggð á þeirri dýrmætu
reynslu sem hugbúnaðarfyrirtækin hafa aflað með löngu og
nánu samstarfi við innlendar verslanir,“ segir Gunnlaugur.
Góðir samverhamenn Stefna Kögunar hefur verið sú
að halda fyrirtækjunum í samstæðunni sem sjálfstæðum
rekstrareiningum. „Við sem lengst höfum unnið saman
í stjórn Kögunar, stjórnarformaðurinn Örn Karlsson,
Vilhjálmur Þorsteinsson og ég, setjumst sjálfir í stjómir
fyrirtækjanna. Segjum fyrir um þau hagnaðarmarkmið
sem við teljum að hægt eigi að vera að ná og byggjum á
reynslu okkar úr öðrum fýrirtækjum að teknu tilliti til veltu-
markmiða. Svipuð stjórnunarstefna hefur verið við lýði hjá
Opnum Kerfum Group hf. þannig að stjórnunarstíllinn er
líkur i báðum samstæðum."
Fyrir stjórnendur eru góðir samverkamenn það sem
öllu skiptir og þá kveðst Gunnlaugur svo sannarlega hafa.
Bjarni Birgisson hefur verið samverkamaður Gunnlaugs
síðustu ijórtán árin og stýrir daglegum rekstri Kögunar
hf. meðan Gunnlaugur leggst í víking og kaupir fyrir-
tæki. Samstarf Gunnlaugs og Héðins Eyjólfssonar fjármála-
stjóra nær þrjátíu ár aftur í tímann og Sigurjón Pétursson,
framkvæmdastjóri VKS og Landsteina - Strengs, er einnig
gamall samverkamaður, bekkjarbróðir Gunnlaugs úr MR og
viðskiptadeild HI. Einnig má nefna Gunnar Ingimundarson
stofnanda og fyrrum aðaleiganda Hugar og þá eru nokkrir af
stofnendum VKS enn starfandi í samstæðunni og nánir sam-
starfsmenn Gunnlaugs. Þá eru í Skýrr, dótturfyrirtæki OGK,
hæstráðendur Hreinn Jakobsson forstjóri, sem starfaði með
Gunnlaugi hjá Þróunarfélagi Islands, Þorvaldur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri hjá Skýrr, sem var nánasti samstarfs-
maður Gunnlaugs fyrstu ár Kögunar í Kaliforníu.
Heimurinn er ef vil vill ekki svo stór eftir allt.H!]
Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi
Kögunar á síðustu misserum og hvert
tölvufyrirtækið á fætur öðru hefur komist
í þess eigu. Sóknarfæri íslensks tölvu- og
hugbúnaðariðnaðar á komandi tíð eru
einkum erlendis, að mati forstjórans,
Gunnlaugs M. Sigmundssonar, en það
var einmitt úr verkefhum fyrir erlenda
aðila sem Kögun varð til.