Frjáls verslun - 01.09.2004, Blaðsíða 106
Grlmmileg grisjun
Stríðsástand mun ríkja milli flugfélaganna í vetur, svo hörð verður samkeppnin.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Ólafsson
að verður blóðbað, stríð, milli flugfélaganna. í lok dagsins
verður það sá sem er ódýrastur sem mun sigra. Svo einfalt
er það. Þetta verður erfiður vetur þvi að stríðið mun halda
áfram árið 2005. Við eigum peninga í stríðskistunni og munum
halda áfram að vinna að því að lækka verðið,“ segir Kell Ryan,
bróðir Tony Ryans, stofnanda Ryanair lágfargjaldaflugfélagsins
í Bretlandi. Kell Ryan er hættur í föstu starfi hjá Ryanair og
gegnir nú hlutverki nokkurs konar „sendiherra" flugfélagsins.
Iceland Express bauð nýlega til blaðamannafundar á Stansted-
flugvelli nærri London til að kynna völlinn og þá þjónustu sem
þar er að fá og voru blaðamaður og ljósmyndari Fijálsrar versl-
unar á fundinum. Kell Ryan sagði írá lágfargjaldamarkaðnum
og kynnti Ryanair.
Grimmileg grisjun Lágfargjaldaflugfélögum hefur vaxið
fiskur um hrygg og eiga þau bjarta framtíð fyrir sér þó að
samkeppnin verði hörð í vetur og búast megi við að grimmi-
leg grisjun eigi sér stað á markaðnum. Ryanair ætlar að
standa uppi sem sigurvegari enda er félagið rekið af miklu
kappi með spamað og hagræði í forgmnni til að geta boðið
upp á lág fargjöld. Hugsunin er öðmvísi. Einfaldleikinn er í
fýrirrúmi. Um 96% af bókunum eiga sér stað á Netinu. Starfs-
fólkið er ungt og það fær vel borgað. Ovenjulegt er að fólk
borgar nokkur þúsund krónur fyrir að fá
að sækja um hjá félaginu og um það bil
25 þúsund krónur ef það er svo heppið
að komast í atvinnuviðtal. Þá er allt gert
til að skera niður kostnað hjá félaginu.
Ahafnimar þrífa vélamar sjálfar og borga
fyrir leigubílinn heim úr vinnunni og
þurfa að greiða fyrir þúninginn sinn, viðskiptavinir þurfa að
greiða sérstaklega ef þeir fá veitingar um borð, engin glugga-
tjöld em og fyrirhugað er að setja auglýsingar í stað sætis-
vasa. Þá hafa verið viðraðar hugmyndir um að láta farþega
borga fyrir salemisnotkun, svo að nokkur dæmi séu nefnd.
Lágfargjaldaflugfélögin eiga ekki langa sögu að baki. Elsta
lággjaldaflugfélag Evrópu, Ryanair, á rætur að rekja til ársins
1985 þegar það var stofnað af Tony nokkmm Ryan. Arið 1986
kom Kell Ryan til starfa hjá bróður sínum og gerðist markaðs-
stjóri Ryanair í Evrópu eftir að hafa starfað hjá Air Iingus í 25 ár.
Ryanair skilaði tapi fyrstu árin og fjármagnaði Tony Ryan það úr
eigin vasa en hefur skilað hagnaði frá því að Michael O’Leary
tók við stjómun fyrirtækisins. Hann gerði það að lágfargjalda-
félagi að fyrirmynd Southwest Airlines í Bandaríkjunum sem
hefur skilað hagnaði í rúmlega 30 ár. Það er einkum tvennt sem
Kell Ryan telur að skipti mestu hvað velgengnina varðar; starf-
semi Ryanair á Netinu og flug félagsins til og frá Stansted-flug-
velli sem hófst árið 1991. Arið 1997 var flug milli Evrópulanda
gefið fijáls og skapaðist þá gmndvöllur fyrir vexti lágfargjalda-
flugfélaganna. Ryanair hefur gengið vel síðustu árin.
Hagnaður í 11 ár Ryanair hefur skilað hagnaði síðustu 11 árin.
Það skilaði 237 milljónum evra í hagnað á síðasta ári, 115 millj-
ónum evra árið 2002, 100 millj-
ónum 2001 og 80 milljónum
evra árið 2000 svo að það hefur
skilað hagnaði á hverju ári. Við-
skiptin hafa aukist um 20-25%
milli ára. Ryanair hefur búið
sig undir erfiða tíma með þvi að
Hagnýtar slóðir
www. cheapflightsfromstansted. com
www.baa.com/changingplanesatstansted
www.baa.com/ stanstedweekender
www.baa.com/ stanstedholidays