Frjáls verslun - 01.09.2004, Blaðsíða 94
NOVEMBER ER TIMINN
Hlutverk íbúðalánasjóðs er að stuðla að því með lánveit-
ingum að landsmenn geti búið við öryggi í húsnæðis-
málum,“ segir Hallur Magnússon, sviðsstjóri Þróunar-
og almannatengslasviðs Ibúðalánasjóðs.
Hann segir að hvað það varðar að bankamir séu að bjóða
vexti á 4,2% um þessar mundir sé bein afleiðing þess að
Ibúðalánasjóður breytti fyrirkomulagi og skipulagi skuldabréfa-
útgáfu sinnar síðastliðið sumar.
„Þessi skipulagsbreyting varð til þess að erlendir Ijárfestar
hafa nú beint aðgengi að skuldabréfum íbúðalánasjóðs sem
þeir höfðu ekki áður vegna ýmissa tæknilegra örðugleika. í
kjölfar breytinganna lækkaði ávöxtunarkrafa á fjármögnunar-
bréfum okkar verulega sem varð til þess að við gátum lækkað
vexti úr 5,1% í núverandi 4,3%. Með þessu má segja að íbúða-
lánasjóður hafi rofið ákveðið vaxtagólf i landinu sem varð til
þess að færa langtímaraunvexti í landinu nær því sem gerist á
erlendum flármálamarkaði. Markmið breytinganna var annars
vegar að lækka vexti almennt og hins vegar að bjóða viðskipta-
vinum sjóðsins íbúðalán á lægstu mögulegu vöxtum sem unnt
er að fá með ijármögnun í íslenskum krónum.
I eðlilegu umhverfi ættu vextir íbúðalána íbúðalánasjóðs
að vera þeir lægstu sem bjóðast á fasteignamarkaði þar sem
sjóðurinn er með bestu mögulegu vaxtakjör í íslenskum
krónum á frjálsum fjármagnsmarkaði. Hins vegar eru bank-
amir um þessar mundir að bjóða útlánsvexti á sértilboði sem
er rétt undir vöxtum íbúðalánasjóðs. Þessu myndarlega fram-
taki bankanna ber að fagna.
Ibúðalánasjóður er með sama lánshæfismat og íslenska
ríkið og talsvert betra en innlendir bankar. Það er ljóst að
enginn íslenskur banki ætti að geta sótt Ijármagn í íslenskum
krónum á sömu vöxtum. Það er því líka nokkuð
ljóst að bankamir em annaðhvort að flármagna
útlán sín með eigin fé eða erlendri lántöku. Vonandi
geta bankamir áfram boðið slík sértilboð á lægri
Hallur Magnússon seglr að Ibúðalánasjóður hafl algera sér-
stöðu hvað varðar tímabundna greiðsluerfiðleika.
vöxtum en sá sem er með besta lánshæfismatið og öflugustu
skuldabréfaflokkana en á Jjármálamarkaði er slíkt almennt
ekki unnt til lengri tíma.“
Hallur leggur áherslu á að allir séu jafnir gagnvart íbúða-
lánasjóði, hvar sem þeir búa á landinu, og segir hann að
Ibúðalánasjóður hafi algera sérstöðu hvað varðar tímabundna
greiðsluerfiðleika.
„Viðskiptavinir sjóðsins geta greitt upp, lengt eða stytt í
lánunum sínum án uppgreiðslugjalds og þannig létt greiðslu-
byrði eða hraðað eignamyndun. Slíkt er ekki unnt um þessar
mundir í bankakerfinu. Þá hlaupum við ekki til og bjóðum upp
hús þeirra sem em í vanskilum, heldur bjóðum við frystingu
lána til allt að þriggja ára, skuldbreytingu van-
skila í 15 ár, lán og lengingu láns í allt að 15 ár
eftir að frystingu er lokið. Þá mun sjóðurinn
væntanlega bjóða 90% lán frá áramótum.“S!]
Allir jafnir gagnvart
Ibúðalánasjóði
ÍBÚÐALÁNAS JDÐUR:
Hægt að frysta
lán í þnjú ár