Frjáls verslun - 01.09.2004, Blaðsíða 111
er lítið úrval af sérríum í Vínbúðunum. Þó
eru til nokkrar tegundir af Fino sérrí, ég
hef hins vegar ekki rekist á Manzanilla
sérrí í búðunum. Þegar búið er að pressa
þrúgumar hefst getjunin og verður vínið
um 12% að styrkleika. Vínið er svo styrkt
með eimuðu þrúguvíni þannig að sérríið
verður um 15% að styrkleika. Þekktasta
Fino sérríið er Tio Pepe, þetta er vel þurrt
sérrí, vel ferskt, með bragði af möndlum
og grænum eplum. Þetta er frábært sérrí
og ljómandi með mat eins og reyktum
laxi, steiktum hurnri og reyktu kjöti.
Lustau Jama Fino er ferskt sérrí með
þægilegu saltbragði og ávaxtakeim.
Garvey Fino San Patricio er einnig ljóm-
andi Fino. I veiðihúsi nú í sumar dmkkum
við Tio Pepe með graflaxi og var það
aldeilis ljómandi. Einnig var lifrarpylsa
og sviðasulta á borðum og það verður að
segjast eins og er að sérríið passaði ljóm-
andi vel með þessum þjóðlega mat.
PÚrtVÍII Ekkert er betra með myglu-
ostum en gott púrtvín. Eiginlega má segja
að púrtvín passi vel með öllum ostum,
sér í lagi bragðmiklum ostum. Púrtvín er
einnig ljómandi með ýmsum eftirréttum.
Nefna mætti eftirrétti úr dökku súkkulaði
og rétti úr súkkulaði og ávöxtum. Þá er
púrtvín ljómandi með villibráðarkæfu eða
pate. Nýlega drakk ég púrtvín með léttsteiktri hreindýralifur
og var það aldeilis frábært.
Sem kunnugt er kemur púrtvínið frá Dourodalnum í Portú-
gal. Púrtvín er blanda vína úr nokkrum þrúgutegundum sem
styrkt er með eimuðum þrúgusafa. Þegar vínandinn er settur
út í vínið stöðvast gerjunin. Það er sem sagt ógeijaður þrúgu-
sykur sem gerir púrtvínið sætt. Púrtvín er yfirleitt um 18% að
styrkleika. Bestu púrtvínin eru þau sem geymd hafa verið í
ámum og látin þroskast í nokkur ár. Þessi púrtvin eru flokkuð
eftir árafjöldanum; Fine Old Ruby, Vintage Port eða Fine Old
Tawny Port. Meðalaldur vínsins er tekinn fram á flöskunni
og hleypur aldurinn ávallt á tugum. Aðdáendur púrtvíns kjósa
helst Vintage Port en það er vín frá ákveðnum árgangi sem
ekki hefur verið blandað. Fyrir þá sem eru á leið til Englands
skal bent á að hvergi er betra og meira úrval af góðu púrtvíni
en á Bretlandseyjum.
Litið úrval er af árgangspúrtvíni í Vínbúðum ATVR. Sande-
man's Fine Tawny er þægilegur púrtari á þolanlegu verði.
Warre's Otima 10 ára Tawny er hins vegar ljómandi púrtvin
með ríku bragði af hunangi og þurrkuðum ávöxtum.
Kampavín Kampavín er aldeilis frábær drykkur með mat.
Hérlendis er kampavín nánast alltaf drukkið fyrir mat eða þá
til hátíðabrigða. Frakkar og Bretar segja hins vegar að kampa-
vín sé drykkur elskenda enda mun það vera löngu sannað að
kampavínið hefur örvandi áhrif á ástalífið.
Kampavín passar einstaklega vel með skelfiski eins og
humri. Það er ljómandi með skötusel, lúðu og laxi. Hér er átt
við þurrt kampavín, hálfsætt kampavín passar hins vegar vel
með eftirréttum og jafnvel sterkum ostum. Mörgum finnst
ekki trúverðugt að kampavín eigi vel við með kjötréttum.
En kampavín getur verið frábært með ýmsum kjötréttum,
einkum með réttum með matarmiklum sósum sem í er ijómi
eða smjör. Sýran í kampavíninu vinnur vel á móti fitunni í
sósunni. Einnig passar kampavín vel með piparsósu. Þurrt
kampavínið og sýran vinnur vel með piparbragðinu, einkum
grænum pipar. Kampavín er ljómandi með önd sem borin er
fram með appelsínusósu. Þurrt kampavínið vegur upp á móti
sætri sósunni og öndin verður enn ljúffengari.
Sæmilegt úrval er af kampavíni í vínbúðum ATVR.
Bollinger Brut Special Cuvee er létt og frískandi, frábært
kampavín með kjöti. Gosset Brut Excellence er vel þurrt,
sýruríkt, með mildu þrúgubragði. Þetta kampavín hentar vel
með fiski, einkum skelfiski. Taittinger Brut Reserve er einnig
gott borðvín. Lanson Black Label Brut er fínt kampavín á
góðu verði og ljómandi með mat.
Lanson Ivory Laber Demi-Sec er rétta kampavínið með
eftirréttum,- gjarnan eftirréttum sem ber eru í eins og jarðar-
ber. Þá er þetta kampavín gott með tertum. í stuttu máli má
því segja að kampavín henti vel með flestum mat. Persónu-
lega finnst mér það þó ekki passa með villibráð.
Kampavín á yóðu verði Þess má geta, að þótt hér á landi
sé eitt hæsta verð á áfengi í heiminum er þó kampavín sú
tegund áfengis sem er á nokkuð góðu verði, sé miðað við
nágrannalönd okkar.IH
Sigmar B. Hauksson mæiir með
eftirtöldum víntegundum:
Sérrí:
Gonzalez Byass Tio Pepe Fino kr. 1.830
Lustau Jarna Fino kr. 1.890
Garvey Fino San Patricio kr. 1.880
Púrtvín:
Sandeman's fine Tawny kr. 2.990
Warre's Otima 10 ára Tawny kr. 2.140
Kampavín:
Bottinger Brut Special Cuvee kr. 3.390
Gosset Brut Excellence kr. 2.590
Taittinger Brut Reserve kr. 2.890
Lanson Black Label Brut kr. 2.640
Lanson Ivory Label Demi-Sec kr. 2.640
111