Frjáls verslun - 01.09.2004, Blaðsíða 65
Hlutverk stéttarfélaga breytist ítakt viö alþjóðavæðinguna, stéttarfélögin verða ekki lengur verkalýðsfélög í hefðbundnum skiln-
ingi heldur frekar þjónustufélög. Myndin er tekin af kennurum á Ingólfstorgi. Myndir: Geir Ólafsson
við mönnun skipa. Það er ljóst að sá strúktúr sem hefur tíðkast
er í raun úr sér genginn fyrir sumar tegundir fiskiskipa og að
menn hafa ekki verið tilbúnir til að gera þær breytingar sem
gera þarf. Þannig eru of margir í áhöfn á vissum tegundum
fiskiskipa. Þetta er raunverulega það sem hann ríður á vaðið
með. Hann vill reyna að ná fram hagræðingu með því að tala
beint við sjómenn fyrst verkalýðshreyfingin og forystumenn
sjómanna vilja ekki semja um breytingar.“
Vinnumarkaðurinn er í stöðugri þróun og það sama gildir
um stéttabaráttuna. Gildi verkalýðsfélaganna er að breytast.
Tryggvi Þór telur að það verði ekki neinar stórar breytingar í
framtíðinni, að minnsta kosti ekki í fyrirsjáanlegri framtíð, en
telur þó að vald verkalýðshreyfingarinnar sé tvímælalaust að
losna. Það segir hann að sjáist t.d. í stéttabaráttunni við Kára-
hnjúka og eigi örugglega eftir að sjást betur á næstu árum.
„Við erum að upplifa breytingar sem hægt er að rekja til alþjóða-
væðingar og þess að markaðurinn og heimurinn, sem við lifum
í, þ.e.a.s. Evrópa, sé einn markaður," segir Tryggvi Þór.
- Heldurðu að verkalyðsfélögin séu að detta út? „Ég
held ekki að þau séu að detta út en ég held að völd þeirra
fari minnkandi og tel að þetta sé einn birtingarháttur þess.
Eðli launabaráttu hefur breyst á síðustu 15 árum. Áður
þekktum við vel að verkalýðsfélög börðust hart fyrir hærri
launum og tóku ekki tillit til efnahagsástandsins en núna
virðist verkalýðshrcyfingin vera vel meðvituð um áhrif launa-
hreytinga eða launahækkana á efnahagslífið og taka á því af
nijög mikilli ábyrgð. Þetta á við hinn almenna vinnumarkað.
bessi skilaboð virðast reyndar ekki hafa komist algjörlega
öl skila til ríkisstarfsmanna. Þeir taka ekki
jafnmikilli ábyrgð á hlutunum, samanber
kennaraverkfallið.“
Verða þjónustufélög Þróunin verður smám
saman og það gerist hægt og sígandi að hlut-
verk stéttarfélaga og verkalýðsfélaga breytist.
»Við höfum séð hvemig hlutverk VR hefur
breyst og það hefur orðið nokkurs konar þjónustufélag fyrir
aðildarmenn sína. VR gerir launakannanir til þess að fólk geti
miðað sig við þann hóp sem það vill miða sig við og samið
svo sjálft um sín laun, sjá um endurmenntun og annað slíkt.
Ég held að verkalýðsfélög af gamla skólanum muni breytast
meira yfir í þjónustufélög fyrir meðlimi."
Vinnustaðasamningar fara vaxandi, að mati Tryggva Þórs,
og þeim einstaklingum fer fjölgandi sem semja fyrir sjálfa
sig ofan á gmnninn hjá stéttarfélögunum, ekki bara hjá
einkafyrirtækjum heldur líka hjá hinu opinbera. „Yfirmenn
ríkisstofnana hafa visst svigrúm til að semja við einstaklinga.
Það er einhver gmnnur og svo geta menn bætt við sig eftir
einhverjum fyrirframgefnum aðferðum," segir hann og telur
að þessi þróun haldi áfram, sérstaklega meðal sérfræðinga
og fagmenntaðra stétta. „En hvort þetta muni tíðkast í fram-
tíðinni á stómm vinnustöðum, t.d. meðal verkamanna, það
geri ég mér ekki alveg grein fyrir.“
- En hvað þýðir þetta fyrir hagkerfið; er þessi þréun e.t.v. for-
senda fleiri starfa og auhins hagvaxtar? „íslenski vinnumark-
aðurinn er í raun mjög sveigjanlegur ef horft er til meginlands
Evrópu. íslenskir ráðamenn hafa haft vit á að binda ekki vinnu-
markaðinn á klafa reglna sem gera hann ósveigjanlegan og
em í því sambandi litnir öfundaraugum af félögum þeirra í t.d.
Þýskalandi þar sem gera verður miklar breytingar til að auka
sveigjanleika og skapa skilyrði til hagvaxtar. Ég tel að minnk-
andi vald verkalýðsfélaganna sé tákn um að þeirra sé ekki þörf
í jafnríkum mæli og áður. Heilbrigðri vinnulöggjöf hefur verið
komið á fyrir tilstilli þeirra og er það vel, en vel menntað fólk er
í flestum tilfellum fært um að
semja fyrir sig sjálft. Jafnframt
er mikilvægt að hafa í huga
að sveigjanleiki er gmnnur-
inn að framþróun og hagvexti.
Rígbundinn vinnumarkaður
leiðir til stöðnunar eins og við
sjáum í Evrópu." HD
Vinnustaðasamningar fara vaxandi,
að mati Tryggva Þórs, og þeim
einstaklingum fer fjölgandi sem
semja fyrir sjálfa sig ofan á
grunninn hjá stéttarfélögunum,
ekki bara hjá einkafyrirtækjum
heldur líka hjá hinu opinbera.
65