Frjáls verslun - 01.09.2004, Blaðsíða 51
ekki eldsneytið, það gera þeir sem leigja vélarnar af okkur.
Við leigjum öðrum félögum flugvélina, áhöfn, viðhald og
tryggingar, en viðkomandi félag sér um að útvega og greiða
fyrir eldsneyti, mat um borð, farþegaafgreiðslu o.s.frv. Þetta
hefur því meiri áhrif á viðskiptavini okkar en okkur. Það er
hagvöxtur í heiminum og fólk ferðast meira en áður þannig
að það er enginn verkefnaskortur, síður en svo. Við höfum
meiri verkefni en við getum annað og þurfum að neita
sumum verkefnum sem er aldrei gott í okkar huga, sérstak-
lega ef tækifærin eru góð.“
Eldsneytisverð telur Hafþór að lækki tæpast á næstunni
þar sem gríðarleg þörf sé fyrir eldsneyti þar sem hagvöxtur
er hvað mestur, t.d. í Kína. Einnig fari í hönd með vetrinum
mikil olíuþörf í N-Ameríku og svo sé framleiðsla á olíu tak-
mörkuð. „Óvissa ríkir á mörkuðum vegna skemmdarverka á
olíuframleiðslu í írak og fleiri þátta sem spila inn í. Ef þetta
breytist ekki í bráð verður veturinn erfiður. Sem dæmi gerir
American Airlines, eitt stærsta flugfélag í heimi, ráð fyrir
að eyða einum milljarði dollara umfram rekstraráætlun út
af háu olíuverði. Það er ekkert smáræði og hefur gríðarleg
áhrif. Flugfélögin þurfa að ná niður kostnaði í öðrum þáttum
starfseminnar til að ná niður rekstrarkostnaði því að fargjöld
standa í stað eða lækka ef eitthvað er. Með Avion og hagræð-
ingunni innan samsteypunnar gerum við ráð fyrir að ná niður
rekstrarkostnaði. Það gerir okkur sterkari en annars værum
við ekki samkeppnishæfir,“ segir Hafþór.
- Það er takmarkað f jármagn sem hægt er að sækja á íslenskan
markað. Kemur til greina að fara á erlendan markað til hliðar
VÍð þann íslenska? „Við teljum að það sé miklu sterkara
að fara á markað á íslandi, m.a. vegna þess að það hefur ekki
komið stórt fyrirtæki á markaðinn í yfir tvö ár og Jjárfestar
eru famir að bíða eftir nýjum valkosti. Það er hungur eftir
nýju og sterku félagi á markaðinn. Við teljum að það sé betra
á þessu stigi málsins að vera á markaði hér á Islandi auk
þess sem það er ánægjulegt að geta gert það. Okkar rætur
em hér. Þetta er íslenskt fyrirtæki. Við ætlum að vera með
höfuðstöðvar hér áfram og nota íslenskt hugvit."
Starfsemi á 20 Stöðum Hafþór bendir á að Avion sam-
steypan verði stærsta félagið á þessu sviði í heiminum þegar
skipulagsbreytingin verður um garð gengin og segir að
það komist enginn með tæmar þar sem Avion hafi hælana.
Stefnan sé að viðhalda þessari stöðu, takmarkið sé að vera
með ráðandi markaðsstöðu og skila hluthöfum góðum arði.
„Við sníðum okkur stakk eftir vexti. Við emm í rauninni í
dag með starfsemina á 20 stöðum í öllum heimsálfum nema
Suðurskautslandinu. Það em þó ákveðnir markaðir sem við
höfum ekki lagt áherslu á eins og N- og S-Ameríka. Það era
gríðarleg tækifæri framundan í Asíu, t.d. í Kína, þannig að
það er fullt af mörkuðum sem við höfum ekki einbeitt okkur
að áður, en munum gera í framtíðinni. En okkar aðalmarkaðs-
svæði í dag er Evrópa."!]
Atlaskort
Sérkort
Æmr
Á þessum nýja geisladiski eru 11
sérkort af þekktum svæðum og
ferðamannastöðum á iandinu.
Þá eru 23 samsett staðfræði- J
kort i mælikvarða 1:25 000 af A
Suðvesturtandi og Fljótsdals- M
héraði. Auk þess eru tvö ný ^
sveitarfélagakort, kjör-
dæmakort og ferdakort
1:750000. Fyrir PC tölvur.
Þrívíddarmynd i raun-
litum. Þú getur flogið
yfir ísland í tölvunni.
87 samsett Atlaskort
1:100 000.
Ferðakort 1:500 000,
Aðalkort 1:250 000
og sveitarfélagakort.
LANDMÆLINGAR
ÍSLANDS
...vísa þérveginn
51