Frjáls verslun - 01.09.2004, Blaðsíða 82
EIGNAMIÐLUN:
Menntun reynsla þekking og öryggi
Eignamiðlun, sem er til húsa að Síðumúla
21, er elsta starfandi fasteignasalan á
íslandi en hún var stofnuð árið 1957. Þar
starfa tólf manns. Tveir eru lögfræðingar, fimm
úr hópnum eru löggiltir fasteignasalar og tveir
eru löggiltir verðbréfamiðlarar.
„Það er ákaflega líflegt á fasteignamarkaðnum um þessar
mundir og eftírspumin er mikil,“ segir Sverrir Kristinsson
framkvæmdastjóri. „Við njótum þess sannarlega að hafa ára-
tuga reynslu en hún kemur að miklum notum. Þekking,
menntun og reynsla starfsmanna skiptir miklu máli. Öryggið
verður meira og fólk metur það. Þetta em lykilatriði í starfsemi
fyrirtækisins. Við höfum tekið eftír því þegar samkeppni hefur
aukist á markaðnum að fólk gefur mikið fyrir að menn hafi
langa reynslu. Við eigum marga trausta og góða viðskiptavini.
Við emm líka heppin því viðskiptavinir okkar hafa reynst
ömggir og traustir kaupendur og seljendur og það skiptir
miklu máli.“
Eignamiðlun annast verðmat á íbúðar- og atvinnuhúsnæði
Við höfum lagt mikla áherslu á sölu atvinnuhúsnæðis. Eigna-
miðlun hefur selt sumar af þekktustu eignunum í Reykjavík,
bæði höfuðstöðvar þekktra fyrirtækja og mörg af glæsileg-
Meirí eftirspum
en framboð á
fasteignamarkaðnum
ustu einbýlishúsunum á höfuðborgarsvæðinu
og fallega sumarbústaði, t.d. við Þingvallavatn.
Við emm með ýmiss konar atvinnuhúsnæði
___ tíl sölu - skrifstofuhúsnæði, verslunarhúsnæði
og húsnæði fyrir hvers konar atvinnurekstur.
Við höfum haslað okkur völl á því sviði og selt allmikið. Það
er mikil eftírspum eftír slíku. Okkur vantar atvinnuhúsnæði á
söluskrá vegna þess að það em svo margir fjárfestar sem vilja
fjárfesta í atvinnuhúsnæði, sérstaklega ef það er í leigu.
Við seljum líka mikið af íbúðarhúsnæði - bæði fullbúið
og í smíðum. Okkur hefur verið falið að selja íbúðir í heilu
blokkunum. Við emm t.d. að selja íbúðir í verðlaunablokk við
Tröllateig í Mosfellsbæ. Einnig emm við að selja íbúðir í blokk
í Norðlingaholti, 101 Skuggahverfi, Sjálandi í Garðabæ og við
emm að selja íbúðir við Álfkonuhvarf í Kópavogi. Það er líka
meiri eftírspum en framboð á íbúðamarkaðnum og okkur
hefur vantað eignir á skrá. Menn em tilbúnir tíl að borga gott
verð. Verð á húsnæði er tíltölulega hátt í dag og íbúðarhúsnæði
hefur reynst góð fjárfesting. Hækkanir á íbúðarhúsnæði frá
1997 til þessa dags er um 100%.“
Sverrir segir að það hafi orðið miklar breytíngar á fasteigna-
viðskiptum á síðustu áratugum. „Þetta var tíltölulega einfalt
fyrir um 3040 ámm s.s. hvað varðar uppgjör lána og aðra
skjalagerð. Nú hafa verið sett ný lög og hert á öllu. Við
fögnum því. Það em gerðar auknar
kröfur og það verður vonandi til
þess að skapa meira öryggi fyrir
viðskiptavinina.“!2]
„Þekking, menntun og reynsla starfsmanna skiptir
miklu máli. Öryggið verður meira og fólk metur
það,“ segir Sverrir Kristinsson framkvæmdastjóri.