Frjáls verslun - 01.09.2004, Síða 102
Halldóra Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Beinverndar. A heimasíðunni, www.beinvernd.is, er hægt að taka áhættupróf.
BEINVERND:
Hreyfing, kalk og D-uítamín
Markmið Beinvemdar, sem er félag áhugafólks gegn
beinþynningu, er að vekja athygli almennings og
stjómvalda á beinþynningu sem alvarlegu heilsufars-
vandamáli, standa að fræðslu fyrir almenning og heilbrigðis-
starfsmenn, stuðla að rannsóknum á beinþynningu og vera í
samskiptum við erlend félög sem vinna að sömu markmiðum.
Alþjóðlegi beinvemdardagurinn er haldinn 20. október ár
hvert og er ákveðið málefni tekið fyrir í hvert skipti. I ár var það
„karlar og beinþynning". I tileihi þess var gefinn út bæklingur,
heimasíðan, www.beinvemd.is, var uppfærð með efni um karla
og beinþynningu og fréttabréf félagsins var helgað málefninu.
„Við buðum karlalandsliðinu í knattspymu
upp á beinþéttnimælingar og niðurstöður
rannsókna á þeim komu heim og saman við
fyrri rannsóknir, að knattspymuiðkun styrkir
beinin,“ segir Halldóra Bjömsdóttir, íþrótta-
fræðingur og framkvæmdastjóri Beinvemdar.
„Bein knattspymumannanna vom að jafnaði
margfalt sterkari heldur en bein jafnaldra
þeirra sem hreyfa sig minna.“
Á næsla ári verður athyglinni beint að líkam-
legri hreylingu Á www.beinvemd.is em
ýmsar upplýsingar um beinþynningu, s.s.
hvemig hún er greind og hveijir áhættuþætt-
imir em. Þar er hægt að taka áhættupróf. „Því
fleiri spumingum sem fólk svarar játandi þeim
mun meiri hætta er á að það fái beinþynningu. Því er ástæða til
þess að það láti mæla í sér beinin.“
Halldóra segir að þijú beinþynningarbrot séu algengust en
um er að ræða brot sem verða við litinn áverka sem heilbrigt
og sterkt bein myndi þola. „I fyrsta lagi má nefna að miðaldra
konur, sem detta t.d. í hálku, brotna á framhandlegg. í öðm lagi
em það samfallsbrot í hrygg. Þá falla hryggjaliðimir saman og
líkamshæðin minnkar auk þess sem líkamsstaðan breytist. Fólk
verður hokið í kjölfarið og þessu fylgja oft miklir bakverkir. Við
endurtekin samfallsbrot verður minna pláss fyrir lungun sem
hamlar eðlilegri lungnastarfsemi og öndun. Kviðurinn þenst
auk þess og þá er minna pláss fyrir
meltingarveginn sem getur valdið
meltingarvandamálum. í þriðja lagi
em það mjaðmarbrotin sem eru
alvarlegustu brotin. Það er yfirleitt
fólk sem er um og yfir sjötugt sem
mjaðmarbrotnar og það þarf alltaf
að fara í aðgerð. Talið er að einn af
hveijum tjómm látist innan árs eftir
þá aðgerð. Það er ekki beint út af
brotinu sjálfu heldur af afleiðingum
aðgerðarinnar."
Aðalforvarnirnar gegn bein-
þynningu em hreyfing, kalk og
D-vítamín. Reykingar og áfengi eru
eitur fyrir beinin. HD
Einn af hverjum fimm körlum
og ein af hverjum þremur
konum eldri en 50 ára brotna
af völdum beinþynningar. Huga
þarf snemma að forvömum.
102