Morgunn - 01.12.1979, Side 11
UM DAUÐANN
89
til sams konar rannsókna í gjörólíku menningarþjóðfélagi, Ind-
landi, og til samstarfs í þessum indversku rannsóknum fékk
hann íslendinginn dr. Erlend Haraldsson í lið með sér. Þessi
indverska rannsókn var gerð til þess að ganga úr skugga um
það, hvort niðurstöðurnar af rannsókninni í Bandaríkjunum
væru dæmigerðar fyrir bandarísku þjóðina. En niðurstöður
indversku könnunarinnar reyndust þær sömu, þrátt fyrir gjör-
ólíka menningu, trúarbrögð og lífsviðhorf þessara ólíku þjóða.
Bók þeirra drs. Karlis Osis og drs. Erlends mun vera í þýðingu
og verður það mikill óvinningur að fá hana á íslensku.
Ein bók er þó þegar komin á íslensku um þetta fróðlega efni,
en það er bók Raymonds A. Moody, jr., LlFIÐ EFTIR LÍFIÐ.
Vakti hún gífurlega athygli þegar hún kom út í Bandaríkjun-
um 1975.
Þótt sannarlega sé margt merkilegt að finna i bók Moodys,
þá verður bók þeirra doktoranna Osis og Erlends Á DAUÐA-
STUND þó sennilega að teljast fyrsta vísindalega rannsóknin á
þeim fyrirbærum sem svo margir hafa lýst á dauðastund sinni,
en þeir áttu tal við yfir 1000 lækna og hjúkrunarkonur á Ind-
landi, sem fró slíku höfðu að segja. Þessar rannsóknir hafa nú
vakið svo mikla eftirtekt, að vísindin hafa orðið að búa til nýtt
orð um þessi vísindalegu fræði, en það er orðið THANALOGY
eða dauðafræði. Virtasti sérfræðingur og kunnasti á þessu sviði
í Bandaríkjunum er dr. med. Elisabeth Kúbler-Ross í Flossmoor
i Illinois. En hún skrifar formála að báðum þeim bókum, sem
ég hér að framan hef nefnt um þessi fyrirbæri. Hún segir
meðal annars í formála bókar Moodys, LlFIÐ EFTIR LÍFIÐ:
„Ég tel að við séum komin að krossgötum í andlegum málum
mannlegs lífs. Við verðum að taka i okkur kjark til þess að
opna ýmsar lengi luktar leiðir og játast um leið undir þann
sannleik, að vélræn, vísindaleg tækni okkar tíma er þess ekki
umkomin að takast á við fjölmargar ráðgátur og fyrirbæri
mannlegs lífs“.
Sýnir við dánarbeð eru vitanlega ekki fremur en önnur sál-
ræn fyrirbæri neitt nýnæmi. Þetta hefur hvort tveggja fylgt
mannkyninu frá upphafi vega, enda er þeirra getið í ævisögum