Morgunn - 01.12.1979, Síða 29
UM DAUÐANN
107
in aðra frá þeim tímum, myndir af ýmsum atriðum sem báru
fyrir mig og systur mínar af einu og öðru sem ég átti í við ná-
grannana og af stöðum sem ég hafði dvalið á. Svo var ég i
barnagæsludeild og þá rifjaðist upp fyrir mér minningin um
það, þegar eina leikfangið, sem mér þótti vænt um, brotnaði
og ég grét langa lengi. Þetta var sár upprifjun. Myndirnar
röktu æviskeið mitt áfram, rifjuðu upp fyrir mér þegar ég var
skátastúlka og var með í útilegum og einnig drógu þær fram
ýmsar minningar frá skólaárunum. Þegar ég var i sjöunda og
áttunda bekk, þótti mér mikill heiðursauki að því að hljóta
verðlaun fyrir góða ástundun, og þarna minntist ég þess þegar
ég hlaut þau. Þannig héldu minningamyndirnar áfram og upp
eftir skólaárum mínum allt til fyrstu áranna í háskólanum,
þar sem ég nú var.
Þessar ævimyndir komu í réttri timaröð og þær voru í þrí-
vídd, svo manni fannst sem maður gæti gengið inn í þær og
orðið hluti af þeim, og þær voru í eðlilegum litum. Til dæmis
gat ég fylgst nákvæmlega með öllum hreyfingum mínum þeg-
ar mér varð á að brjóta uppáhaldsleikfangið mitt og þar var
hárrétt á öllu haldið, enda er mér þetta atvik mjög minnisstætt
enn í dag. Þó var nú ekki eins og ég sæi þetta frá minu eigin
sjónarhorni, heldur því líkast sem þessi litla stúlka væri önnur
stúlka, sem ég sæi á kvikmynd innan um önnur börn á leik-
velli. En allt í einu var þetta ég, enda sá ég sjálfa mig gera
ýmsa þá hluti sem mér eru vel minnisstæðir.
I rauninni sá ég ekki ljósið meðan ég fylgdist með þessari
æviupprifjun, enda virtist veran hverfa jafnskjótt og hún hafði
lagt spurninguna fyrir mig, og þó þóttist ég finna fyrir nær-
veru hennar áfram, enda var sem hún leiddi mig gegnum
endurminningarnar, og svo gerði hún athugasemdir við þær
endrum og eins. Mér fannst þó ekki sem ljósveran þyrfti að
horfa á myndirnar til þess að sjá hvað ég aðhafðist — það vissi
hún fyrir — en hún valdi úr nokkrar minningamyndir og
eins og skerpti þær fyrir sjónum mínum, svo enginn vafi gæti
leikið á því að ég myndi eftir þeim.
Meðan á þessu stóð vakti ljósveran stöðugt athygli á gildi