Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Side 45

Morgunn - 01.12.1979, Side 45
ÍSLENDESTGAR Á ALRjÓÐAFUNDI 123 an við frú Eileen Roberts. En þarna kom einmitt fram árang- urinn af því, sem frú Roberts hafði verið að kenna þessa þrjá daga. Eftir hádegi fór fram fundur um framtíðarstarfsemi Al- þjóðlega Spíritistasambandsins, sem hélt þetta ráðstefnumót. Um kvöldið fór fram kveðjuhóf og var þar ýmislegt til skemmtunar. Islendingur einn, lagði sitt af mörkum, en það var Ævar R. Kvaran. Hann kom fram á sviðið og flutti þátt úr Islend- ingasögunum á ensku, þ. er Gunnlaugs sögu Ormstungu, um drauminn fræga um Helgu hina fögru og viðureign þeirra Gunnlaugs og Hrafns. Jafnframt flutti Ævar hressilega og blaðlaust kafla úr HAMLET — en á eftir dró hann skemmtilega og athyglis- verða ályktun af efni því, sem hann hafði flutt. Fannst áheyrendum, sem þeir þarna kynntust ennþá einni hlið í viðbót á Ævari R. Kvaran. Þar með lauk mjög ánægjulegri dvöl í Stansted Hall og höfðu margir við orð að láta sig ekki vanta á næstu ráð- stefnu The Inernational Spiritualist Federation, sem þá var ekki ákveðið, hvar eða hvenær verður haldin.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.