Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Side 68

Morgunn - 01.12.1979, Side 68
146 MORGUNN hefur verið fram í áratugi í þessu tímariti hljóti að hafa við rök að styðjast. Undanfarin tvö ár hefur fólk í vaxandi mæli óskað að gerast félagar í S.R.F.l. og þá ekki síst ungt fólk. En undanfarið hefur það blátt áfram streymt í félagið. Það sama mun verða hjá Sálarrannsóknafélagi Keflavikur, sem starfar nú af krafti undir ötulli stjórn. En Queenie Nixon mun skipta þeim hálfa mánuði sem hún dvelst hér á landi að þessu sinni milli þessara tveggja félaga. Eins og sjá má af blaðagreininni sem birt er hér í þessu hefti Morguns, hefur heimsókn Queenie Nixon haft heilla- drjúg áhrif á margar manneskjur. Ég færi henni því þakkir fyrir komuna fyrir hönd okkar allra sem unnum þeim mál- stað, sem þetta tímarit berst fyrir. Okkur er alveg ljóst að mjög væri æskilegt að hún gæti heimsótt félög út um land, en af þvi getur ekki orðið að þessu sinni, sökum þess, hve naumur sá tími var, sem okkur var skammtaður. En ég mun reyna síðar að komast að samkomulagi við hana um að koma aftur til landsins og geta þá veitt okkur lengri tíma, svo hún gæti sýnt frábæra sálræna hæfileika fleirum en okkur sem þegar höfum notið þess. Fædd inní spíritismann Það má segja, að Queenie Nixon sé fædd inni spíritismann. Faðir hennar dó áður en hún fæddist og þess vegna ólst hún upp hjá tveim frænkum sínum. En svo vildi til, að þær voru báðar miðlar, enda bjuggu þær hvor í sínum landshluta. Queenie kynntist því þessum sálrænu hæfileikum frá upphafi og ólst upp við þá. Hún reyndist því sérstaklega vel undir það búin að gera þetta að aðalstarfi lífs síns. En varla hefði þó svo farið, ef hún hefði ekki sjálf haft meðfædda sálræna hæfi- leika, sem hún varð vör við þegar í æsku. En hún hóf störf opinberlega sem miðill, þegar hún var nítján ára. Hún hef- ur bent á, að vitanlega þurfi maður ekki að vera spíritisti til þess að vera skyggn. Þannig geta rónar, útigangsmenn og jafnvel morðingjar verið skyggnir. Þetta er hæfileiki sem hjá

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.