Morgunn - 01.12.1979, Síða 71
RITST J ORARABB
149
félagar hans, sökum þess, að hann var haldinn óseðjandi
forvitni um ýmislegt sem virtist gerast, en jafnvel æðstu
skólar kenndu ekkert um, eða virtust halda að byggðist á
svikum. Eitt af þessu var sú fullyrðing ýmissa manna, að
þeir gætu t. d. fundið hvar vatn leyndist i jörðu, og jafnvel
olia og málmar. Menn með þessa hæfileika hafa stundum
verið kallaðir vatnsleitarmenn, en eru á ensku kallaðir
„dowsers“ eða „deviners“. Ég mun kalla þá djúpleitarmenn,
sökum þess, að hæfileikar þeirra liggja í því, að geta fundið
það sem ósýnilegt býr undir yfirborði jarðar, en mikilsvert
er að finna, líkt og þegar við Islendingar leitum með hor-
unum að heitu vatni.
Reinhart var gallharður efasemdarmaður, eins og titt er
um lærða menn. Hann tók þess vegna þá ákvörðun, að koma
í eitt skipti fyrir öll, upp um þá menn sem þóttust vera
gæddir hæfileikum, sem talið var að væru sálræns eðlis.
Aðferð djúpleitarmanna liggur í því að ganga yfir land-
svæði hafandi í höndum teinung vissrar viðartegundar og
þegar það sem þeir leita að er undir jarðskorpunni sem þeir
ganga yfir beygjast greinarnar niður.
Það er skammt frá þvi að segja, að Reinhart hóf tilraunir
til þess að afsanna þetta fyrirbæri, en í þess stað uppgötv-
aði hann, að hann sjálfur hafði einmitt þá hæfileika sem
nauðsynlegir voru til þess að ná árangri í þessum efnum og
þetta gjörbreytti svo afstöðu hans, sem vísindamanns, til and-
lega eiginleika. Og þetta skýrði hann allt saman fyrir fé-
lagsmönnum S.R.F.I. á sérstökum aukafundi, sem við héldum
með honum núna í sumar.
lleinliart snýr
við hlaðinu.
Eins og áður, þegar einlægur visindamaður
ætlar sér að koma upp um svik á sviðum
sálrænna hæfileika, leiddu rannsóknir hans
til þess að hann sannfærðist um það sem hann taldi fyrir-
fram með öllu iitilokað. En Reinhart taldi sér skylt að halda
áfram rannsóknum sínum á þessu sviði og eru niðurstöður