Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Page 78

Morgunn - 01.12.1979, Page 78
156 MORGTJNN Magnús Sveinsson frá HvítsstöSum: ICONAN VIÐ FOSSINN. Æviþœttir Jóns Daníelssonar skipstjóra og sam- band hans við huldukonuna, er fylgt hefur honum í lífi og starfi. Útg. Bókaútgáfan Þjóðsaga 1978. Eins og bækur þær sem Þjóðsaga gefur út er þetta falleg bók, þótt hún sé ekki fyrirferðarmikil. Hvers konar bækur um endurminningar merkra manna koma út á ári hverju og virðast. eiga miklum vinsældum að fagna, þótt allmisjafn- lega sé á penna haldið. Þetta er eitt af einkennum litils þjóð- félags þar sem næstum allir þekkja alla að einhverju marki og grundvöllur fyrir persónulega forvitni að sama skapi sterkur. Það er yfirleitt ekki annað en gott eitt um þessa þróun að segja að því leyti að með þessum hætti bjargast ýmislegt sem athyglisvert er og á það skilið að geymast. Hins vegar getur mikil eftirspum þessarar tegundar frá- sagna einnig leitt til þess að sögumenn taka að freistast til að beita ýkjum i stórum stíl og temja sér svokallaða „ber- sögli“ í svo ríkum mæli, að það getur sært vandamenn þeirra sem sagt er frá í slíkum frásögnum. Til eru útgefendur sem með auglýsingum sínum hvetja höfunda til slikra vinnu- bragða, en greindir lesendur sjá venjulega í gegnum slík gróðabrögð, svo slíkt verður að lokum höfundum til skammar, þegar til lengdar lætur. Slíkt er til lítils sóma fyrir þá sem að því standa. Konan viS fossinn er ekki þess háttar bók. Jón Daníels- son skipstjóri er ekki maður stórra orða um sjálfan sig eða aðra. öll frásögn hans einkennist af hlédrægni og látleysi sem gerir hana miklu trúverðugri og eðlilegri fyrir bragðið. Það sem hann segir frá og telur sjálfsagt að gera án ha- stemmdra orða lýsir manninum best. Þetta er góður og göf-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.