Morgunn - 01.06.1989, Síða 76
MORGUNN
HITT OG ANNAÐ
hafði reynt borðtilraunir og skrift með ungu stúlkunni, sem
var á heimili okkar, kom þessi hvítklædda stúlka frá draum-
unum þar fram. Það virtist þá koma þar fram, að hún ætti
bjög bágt en hefði ekki áttað sig á því, fyrr en hún hafði
kynnst mér í draumunum, og svo dregist þarna til okkar.
Við reyndum að gera eins mikið fyrir hana og í okkar valdi
stóð, og hún virtist átta sig smám saman, eftir því sem hún
kom oftar til okkar. Að síðustu þakkaði hún okkur fyrir sig
og hvarf alveg frá okkur. Síðan hef ég ekki orðið hennar vör,
fyrr en nú nýlega, er ég fór að rifja þessar sögur upp fyrir
forseta okkar, hr. Kvaran.
Það var um kvöld í hálfrökkri, að ég sat þar heima og sagði
þessar sögur. Ég hafði byrjað að segja frá þessum atburði.
En allt í einu fann ég, að allt ruglaðist fyrir mér; ég mundi
ekki nokkurn hlut af sögunni, og mér fannst ég jafnframt
finna stúlkuna standá hjá mér. Á þessu stóð nokkrar mínút-
ur. Ég beitti öllum vilja mínum til að safna mér saman aftur
og það tókst.
Svo var það í gærmorgun, — ég var byrjuð að skrifa um
þetta og ætlaði að segja, hvar þetta hefði gerst. Mér fannst
það ekkert gera til, því að nú er enginn á lífi, sem það hefði
getað sært.
f»á sá ég stúlkuna í albjörtu standa hjá mér við skrifborðið
— og ég fann, að hún var að biðja mig að nefna ekki nöfn. Ég
skildi hana að minnsta kosti svo.
Þetta er því ástæðan fyrir því, að ég hef ekki viljað segja
sögu þessa öðruvísi en svona.
Ég hef nú lokið því, sem ég ætlaði að segja í kvöld, og bið
ykkur að virða á hægra veg.
Morgunn 1920, 2. og 3. hefti.
74