Morgunn - 01.06.1990, Page 6
Ritstjórarabb
MORGUNN
fremst við söfnun róta, hefði samband við annað hvort
Ævar sjálfan eða Sálarrannsóknafélag íslands sem þá
myndi koma skilaboðum um það til hans.
Talsverð umræða hefur verið íjgangi um hina svo kölluðu
Nýöld og um hvað hún snúist. I þessu tölublaði birtum við
grein eftir Eileen Roberts sem innlegg í þessa umræðu en í
greininni veltir hún þessu fyrir sér og m.a. því hvort yfirleitt
sé nokkuð nýtt hér á ferðinni. Umfjöllunin í dag hefur oft
að manni finnst verið á þann veg að hér sé eitthvað alveg
nýútsprungið að koma fram sem ekki hafi boðist jarðarbú-
um áður.
Eileen hefur áratuga reynslu varðandi starf að dulrænum
málum, bæði sem miðill, kennari og stjórnandi stórra sam-
taka á þessu sviði. Hún hefur því góða yfirsýn yfir þessi mál
og fróðlegt er að kynnast hennar sjónarmiði varðandi þá
öldu sem nú ríður yfir.
Þá er í ritinu þýdd grein eftir D. Scott Rogo er fjallar um
rannsóknir sem gerðar hafa verið á dulskynjun dýra. Kem-
ur þar margt forvitnilegt fram og er ég ekki í vafa um að
margir munu kannast við áþekk dæmi og nefnd eru í grein-
inni af sínum eigin dýrum. Það væri reyndar gaman ef þeir
sem það gera væru til í að senda okkur frásagnir af því sem
þeir myndu telja dulræna skynjun af einhverju tagihjá dýri
eða dýrum sem þeir eiga eða þekkja til. Slíkar frásagnir,
hvort sem er af fólki eða dýrum (því fæstir held ég dragi það
í efa að flest dýr búi líka yfir hæfileikum til s.k. dulrænnar
skynj unar) verða of tast nær til þess að renna frekari stoðum
undir staðreynd þessara mála.
Einnig eru í þessu riti greinar um endurholdgun og dauð-
ann, sem svo er kallaður, auk tveggja ljóða eftir Kristínu
Jónsdóttur.
Vona ég að innihald þessara efnisliða reynist líka gott inn-
legg í „sarpinn” hjá þeim er þessi mál íhuga.
Með góðri kveðju,
Guöjón Baldvinsson.
4