Morgunn


Morgunn - 01.06.1990, Side 54

Morgunn - 01.06.1990, Side 54
Dulræn skynjun dýra MORGUNN sem búast mátti við ef alger tilviijun hefði ráðið ferðinni. Samt sem áður höfðu hundarnir tilhneigingu til þess að gera best í upphafi tilraunanna en eftir það minnkaði ná- kvæmnin hjá þeim. Herinn ákvað að lokum að hætta þessum tilraunum, þrátt fyrir þá staðreynd að þær hefðu gefið niðurstöður sem lofuðu góðu. Arangurinn var ekki nógu stöðugur og það að þjálfa hunda til æðri skynjunar myndi ekki verða nógu hagkvæmur kostur. Það sem þeir settu helst fyrir sig var það að hundarnir gátu ekki einir og sér leitað að og fundið sprengjur. Þjálfari þeirra varð að leiða þá um svæðið. Sennilega var flóknasta tilraunin með hunda sem við- fangsefni framkvæmd nokkrum árum eftir að verkefni dr. Rhines lauk, en það var þegar Dr. Aristede Esser, sálfræð- ingur við Rockland ríkisspítalann í New York, framkvæmdi röð snjallra tilrauna árið 1975. Þær voru augljóslega tii- komnar vegna orðróms sem var útbreiddur á 6. áratugnum en samkvæmt honum voru Rússar að gera tilraunir með æðri skynjun hjá dýrum. Eitt atriði þessa orðróms sagði frá því að Rússar hefðu sent nokkra kanínuunga með kafbáti á haf út en haldið móður þeirra á rannsóknastofu inn í landi. Sagan sagði að þegar þeir hefðu annað hvort drepið eða hrætt ungana, þá hefði móðirin orðið verulega óróleg á nákvæmlega sama andartaki. Sannindi þessarar sögu hafa aldrei verið staðfest, þó að tveir blaðamenn, Sheila Ostrand- er ogLynn Schoeder, sem fóru til Sovétríkjanna til að athuga þar tilraunir í dulsálarfræði, endurtaki söguna í bók sinni „Psychic Discoveries Behind The Iron Curtain." En hvað svo sem segja má um söguna, þá gaf hún dr. Esser hug- myndina að tilraun hans - eða að því er virtist a.m.k. Dr. Esser framkvæmdi um síðir fjölda tilrauna til þess að komast að því hvort hundar gætu brugðist við hugskeytum þegar húsbændur þeirra eða skyldir hundar urðu fyrir ein- hverri ógnun. I einni tilrauninni notaðist hann við tvö herbergi sem staðsett voru í sitt hvorum enda sjúkrahússins þar sem hann starfaði. Tveir hundar sem höfðu verið þjálf- aðir til veiða, voru settir inn í annað herbergið. Á herberginu var gluggi þannig að hægt var að fylgjast vandlega með 52

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.